Breiðablik Íslandsmeistari karla í fótbolta árið 2022 Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. október 2022 21:06 Íslandsmeistarar. Vísir/Hulda Margrét Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari karla í fótbolta. Stjarnan og Víkingur, Íslandsmeistarar síðasta árs, áttust við í Garðabæ en gestirnir voru fyrir leik kvöldsins eina liðið sem átti tölfræðilega möguleika á að ná toppliðinu. Það fór svo að Stjarnan vann 2-1 sigur sem þýðir að Breiðablik er Íslandsmeistari árið 2022.
Víkingar hófu leik kvöldsins betur og ætluðu sér að halda lífi í Íslandsmótinu ef marka mátti upphaf leiksins. Þeim tókst að koma boltanum í netið en það var dæmt af vegna rangstöðu og var staðan markalaus þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Þegar slétt klukkustund var liðin af leiknum þá braut Karl Friðleifur Gunnarsson ísinn fyrir gestina úr Víkinni. Hann átti þá skot sem hafði viðkomu í varnarmanni og sveif yfir Viktor Reyni Oddgeirsson í marki Stjörnunnar. Gamla brýnið Óskar Örn Hauksson svaraði um hæl fyrir heimamenn og staðan orðin 1-1 þegar 27 mínútur voru til leiksloka. Sjö mínútum síðar fékk Stjarnan aukaspyrnu sem Jóhann Árni Gunnarsson tók. Spyrna hans rataði á kollinn á Daníel Laxdal sem stýrði boltanum í netið og kom Stjörnunni 2-1 yfir. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 2-1 Stjörnunni í vil. Breiðablik, sem hefur ekki orðið Íslandsmeistari síðan árið 2010, er með 57 stig þegar þrjár umferðir eru eftir af Íslandsmótinu. Þar á eftir koma Víkingur og KA með 46 stig. Það er því ljóst að Breiðablik er Íslandsmeistari árið 2022.
Fótbolti Besta deild karla Breiðablik Kópavogur Tengdar fréttir Í beinni: Stjarnan - Víkingur | Stjörnumenn geta tryggt Blikum titilinn Stjarnan vann 2-1 endurkomusigur á Víking þegar liðin mættust í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Sigurinn þýðir að Breiðablik er Íslandsmeistari þar sem ekkert lið getur náð þeim að stigum þó þrjár umferðir séu enn eftir af Bestu deildinni. 10. október 2022 22:15 Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira
Í beinni: Stjarnan - Víkingur | Stjörnumenn geta tryggt Blikum titilinn Stjarnan vann 2-1 endurkomusigur á Víking þegar liðin mættust í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Sigurinn þýðir að Breiðablik er Íslandsmeistari þar sem ekkert lið getur náð þeim að stigum þó þrjár umferðir séu enn eftir af Bestu deildinni. 10. október 2022 22:15