Norðanátt með éljum norðantil en bjart fyrir sunnan Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2022 07:09 Hiti verður um frostmark á norðanverðu landinu, en tvö til sjö stig sunnantil. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðan- og norðaustanátt í dag, víða átta til þrettán metrum á sekúndu með éljum fyrir norðan og bjart sunnan heiða. Það hvessir í kvöld á má reikna með áframhaldandi norðanátt um helgina.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði um frostmark á norðanverðu landinu, en tvö til sjö stig sunnantil. „Það hvessir í kvöld og nótt og svo verður hvöss norðanátt á laugardag og sunnudag með 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum og síðar líka á Suðausturlandi. Rigning eða slydda nærri sjávarmáli á norðurhelmingi landsins, en snjókoma á heiðum og má því búast við erfiðum akstursskilyrðum og jafnvel vetrarfærð þar. Þurrt að kalla sunnanlands. Hiti 1 til 7 stig, mildast við suðurströndina. Það dregur hægt úr vindi og úrkomu seint á sunnudag. Svo fylgir nokkrir rólegir dagar eftir helgi með yfirleitt bjartviðri og fremur hægum vindum.“ Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í norðan 13-20 m/s, hvassast norðvestan- og suðaustantil. Rigning eða slydda nærri sjávarmáli á norðurhelmingi landsins, en snjókoma á heiðum. Þurrt að kalla sunnanlands. Hiti 1 til 7 stig, mildast við suðurströndina. Á sunnudag: Norðan 10-18. Slydda eða snjókoma norðanlands, rigning með austurströndinni, en úrkomulítið sunnan heiða. Fer að draga úr vindi og úrkomu seinnipartinn. Hiti 0 til 5 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 og yfirleitt skýjað norðantil en bjart með köflum sunnanlands. Hiti í kringum frostmark fyrir norðan, en allt að 6 stigum syðst yfir daginn. Á þriðjudag: Suðvestanátt og bjart en skýjað vestast. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt og skýjað á vestanverðu landinu, en bjart austantil. Hiti 2 til 7 stig en í kringum frostmark á Norðausturlandi. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu sunnan- og vestanlands en léttskýjað norðaustantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Fleiri fréttir Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Rigning í dag og svo von á júníhreti Breytileg átt og skúrir á víð og dreif Skin og skúrir í dag Hægviðri og lítilsháttar væta Víða skýjað, væta og hiti að þrettán stigum Áfram norðanátt og sums staðar strekkingsvindur Rigning í kortunum Sjá meira