Heimilistæki og Tölvulistinn 90 ára! Heimilistæki 3. nóvember 2022 08:50 Um helgina fagna Heimilistæki og Tölvulistinn, 60 og 30 ára afmæli eða samtals 90 árum.
Í tilefni þessa mikla áfanga ætla Heimilistæki og Tölvulistinn að efna til glæsilegra tilboðsdaga 3. – 7. nóvember og bjóða sérstaklega til afmælisveislu laugardaginn 5. nóvember þar sem verða kræsingar úr heimabyggð í boði í öllum verslunum, heitt á könnunni og fjölmörg vegleg tilboð. Þjóðviljinn árið 1962 Sem dæmi um tilboð helgarinnar má nefna Predator Orion borðtölvu með 90.000 króna afslætti, Nitro 5 leikjafartölvur með allt að 100.000 króna afslætti, 77“ LG OLED sjónvarp með 100.000 króna afslætti, iRobot Roombu ryksuguvélmenni á 43% afslætti og margt, margt fleira. Heimilistæki var stofnað árið 1962 og hefur lengi verið leiðandi í innflutningi og sölu raf- og heimilistækja. Árið 2007, eftir mörg ár í Sætúninu, flutti verslunin í mun stærra húsnæði á Suðurlandsbraut 26 og deilir því með Tölvulistanum sem er á 2. hæð. Verslanir Heimilistækja og Tölvulistans eru saman á öllum sínum fimm staðsetningum en auk Reykjavíkur eru verslanir þeirra staðsettar á Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjanesbæ. Það verður nóg um að vera og aldeilis tilefni til að gera sér ferð í verslanir Heimilistækja og Tölvulistans um helgina. Auglýsing frá árinu 2002 Á Suðurlandsbraut verður sett upp glæsileg 2,5 metra há risaþvottavél úr blöðrum sem gestir og gangandi geta skoðað og tekið mynd af sér við til þess að taka þátt í glæsilegum afmælisleik þar sem verða 6 vinningar í boði fyrir samtals 500.000 krónur. Afmælisleikurinn mun bæði fara fram á samfélagsmiðlum og í verslun svo öllum verði frjálst að taka þátt eins og þeim hentar og eiga jafnan möguleika á að vinna. Meðal vinninga verða meðal annars borðtölva, sjónvarp og ryksuguvélmenni svo það er ærið tilefni til þess að taka þátt. Auglýsing sem birtist í Þjóðlífi 1989 Svo má nefna að á Glerártorgi verður sérstaklega mikið um að vera en Glerártorg fagnar einnig afmæli þessa helgi með skemmtilegri dagskrá 3. – 6. nóvember. Heimilistæki og Tölvulistinn fluttu af Glerárgötunni yfir á Glerártorg haustið 2016 og fagna því 6 ára viðveruafmæli þar í ár. Öll tilboðin og frekari upplýsingar um afmælisleikinn má finna á heimasíðum Heimilistækja ht.is og Tölvulistans tl.is
Hús og heimili Tækni Mest lesið Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Gengi Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira