Hákon Arnar mánuði frá því að ná metinu af Arnóri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2022 09:30 Hákon Arnar Haraldsson sést hér á ferðinni með boltann í gær umrkringdur varnarmönnum Borussia Dortmund. Getty/Sergei Gapon Hákon Arnar Haraldsson varð í gærkvöldi fyrsti Íslendingurinn í þrjú ár og tíu mánuði til að skora í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Hákon Arnar, sem í gær var 19 ára, sex mánaða og 23 daga gamall er fjórði Íslendingurinn sem nær að skora í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en hann er ekki sá yngsti þrátt fyrir ungan aldur. Yngsti íslenski markaskorari Íslands í riðlakeppni Meistaradeildarinnar er áfram Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson sem var nákvæmlega einum mánuði yngri en Hákon þegar hann skoraði fyrir CSKA Moskvu í riðlakeppni Meistaradeildarinnar 7. nóvember 2018. Í gær vour liðnir 1421 dagar síðan íslenskt mark leit dagsins ljós í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en það skoraði Arnór Sigurðsson fyrir CSKA Moskvu á móti Real Madrid á sjálfum Santiago Bernabéu. Arnór lagði líka upp mark fyrir liðsfélaga sinn Fedor Chalov í þessum eftirminnilega leik hans í Madrid. Eiður Smári Guðjohnsen var fyrsti Íslendingurinn til að skora í Meistaradeildinni þegar hann skoraði fyrir Chelsea á móti Lazio í október 2003. Eiður Smári er líka markahæsti Íslendingurinn í Meistaradeildinni með sjö mörk. Alfreð Finnbogason bættist í hópinn með marki á móti Arsenal í lok september 2015 og Arnór skoraði síðan bæði mörkin sín árið 2018.
Hákon Arnar, sem í gær var 19 ára, sex mánaða og 23 daga gamall er fjórði Íslendingurinn sem nær að skora í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en hann er ekki sá yngsti þrátt fyrir ungan aldur. Yngsti íslenski markaskorari Íslands í riðlakeppni Meistaradeildarinnar er áfram Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson sem var nákvæmlega einum mánuði yngri en Hákon þegar hann skoraði fyrir CSKA Moskvu í riðlakeppni Meistaradeildarinnar 7. nóvember 2018. Í gær vour liðnir 1421 dagar síðan íslenskt mark leit dagsins ljós í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en það skoraði Arnór Sigurðsson fyrir CSKA Moskvu á móti Real Madrid á sjálfum Santiago Bernabéu. Arnór lagði líka upp mark fyrir liðsfélaga sinn Fedor Chalov í þessum eftirminnilega leik hans í Madrid. Eiður Smári Guðjohnsen var fyrsti Íslendingurinn til að skora í Meistaradeildinni þegar hann skoraði fyrir Chelsea á móti Lazio í október 2003. Eiður Smári er líka markahæsti Íslendingurinn í Meistaradeildinni með sjö mörk. Alfreð Finnbogason bættist í hópinn með marki á móti Arsenal í lok september 2015 og Arnór skoraði síðan bæði mörkin sín árið 2018. Yngsti markaskorari Íslands í Meistaradeildinni: 19 ára, 5 mánaða og 23 daga Arnór Sigurðsson fyrir CSKA Moskvu á móti AS Roma 7. nóvember 2018 19 ára, 6 mánaða og 23 daga Hákon Arnar Haraldsson fyrir FCK á móti Dortmund 2. nóvember 2022 25 ára, 1 mánaða og 7 daga Eiður Smári Guðjohnsen fyrir Chelsea á móti Lazio 22. október 2003 26 ára, 7 mánaða og 28 daga Alfreð Finnbogason fyrir Olympiacos á móti Arsenal 29. september 2015
Yngsti markaskorari Íslands í Meistaradeildinni: 19 ára, 5 mánaða og 23 daga Arnór Sigurðsson fyrir CSKA Moskvu á móti AS Roma 7. nóvember 2018 19 ára, 6 mánaða og 23 daga Hákon Arnar Haraldsson fyrir FCK á móti Dortmund 2. nóvember 2022 25 ára, 1 mánaða og 7 daga Eiður Smári Guðjohnsen fyrir Chelsea á móti Lazio 22. október 2003 26 ára, 7 mánaða og 28 daga Alfreð Finnbogason fyrir Olympiacos á móti Arsenal 29. september 2015
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Fótbolti Fleiri fréttir Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni Club Brugge - Barcelona | Börsungar í Belgíu Man. City - Dortmund | Tekst gamla liðinu að stöðva Haaland? „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira