Barnapían varð kófdrukkin, móðgaði einhvern í Todmobile og týndi barninu Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 1. desember 2022 19:34 Auður Jónsdóttir flutti einstaklega skemmtilega ræðu í tilefni af Degi íslenskrar tónlistar. Facebook Auður Jónsdóttir rithöfundur segist það lengsta sem hún hafi komist með að vera frægur tónlistarmaður vera þegar hún, þá 17 ára gömul á Akureyri passaði Bryndísi Jakobsdóttur fyrir Röggu Gísla og Jakob Frímann. Þau buðu barnapíunni með í Húnaver þar sem hún fékk baksviðspassa. En einhvernveginn æxlaðist það fljótt þannig að barnapían varð kófdrukkin, móðgaði einhvern í Todmobile og týndi barninu í þvögu poppara og rokkara.
Auður flutti íslensku tónlistarfólki stutta kveðju á Degi íslenskrar tónlistar. Þar rifjaði hún upp þetta kostulega atvik. „Það síðasta sem ég mundi eftir kvöldið var að ég stóð á sviðinu með Stuðmönnum í ham og baðaði mig í fögnuði þúsunda áhorfenda. Ég hafði verið að velkjast þarna drukkin, séð stuðið á sviðinu og tekið mér stöðu á því miðju svo múgurinn gæti fagnað mér." Var Ragga Gísla eitt móðukennt augnablik Auður segir að sig minnir að hún hafi ekki fengið að fara með árið eftir. „En síðan þá hef ég séð þetta í hyllingum, það hlýtur að vera skrítið að standa reglulega á sviði og sjá þúsundir manna öskra af gleði yfir tilveru manns, söng og músík. Eitt móðukennt augnablik var ég Ragga Gísla, og sjitt hvað það var gaman.“ Í ræðu sinni rifjar Auður upp að hún hafi hugsað sterkt um þetta augnablik fyrir þremur árum síðan, þegar hún ásamt þremur fráskildum vinkonum sínum fóru í hringferð um landið og „blöstuðu Röggu.“ „Einhverstaðar í eyðilegum fjörðum öskruðum við okkur hásar, „en hvað um mig og þig?“ Og allt í einu var allt í lagi að vera ein og fráskilin; við vorum með Röggu." „Og allt í einu var allt í einu að vera ein og fráskilin; við vorum með Röggu."Mynd/Óskar P. Friðriksson Svipuð nánd í tónlist og í ást „Í laginu bjó nánd, svörun, eitthvað svo töff, töff orð, töff tónar. Einhver galdur frá Magnúsi Eiríkssyni. Þannig að við að öskursyngja, fundum við eitthvað í okkur sem við höfðum alltaf þekkt, og var svo gott að finna aftur þegar við sjálfar vorum týndar. Þannig virkar tónlist. Maður eignar sér hana, eignar lagi heilu tímabilin, maður er það sem er uppáhalds lagið manns þá stundina," sagði Auður í dag. Hun sagði tónlistin verða að vitund manns, minningu, veru og verunnar sem var. „Og í tónlist býr svipuð nánd og í ást. Tónar seðja sömu tilfinningar og ást, ég hef lesið fræðigrein um þetta." Tónlistin verður vitund manns, minning, vera og veran sem var. Og í tónlist býr svipuð nánd og í ást. Tónar seðja sömu tilfinningar og ást, ég hef lesið fræðigrein um þetta. Hún segir vinkonurnar allt í einu vorum við ekki bara fráskildar, baslandi mæður með fallinn víxil heldur töffararnir sem þær höfðum alltaf verið, syngjandi. „Ein af okkur var meira að segja orðin svo hress þarna í einum endalausum firðinum að hún hringdi í Bubba Morthens og sagði honum að hann væri æðislegur." Auður segir tónlist gera sig þess megnuga að upplifa augnablikið á þann hátt. „Af því ég hlustaði á Mugison syngja Stingum af þegar ég var að svæfa son minn í Berlín, það var vögguvísan okkar, sem söknum stundum allra, vorum búin að stinga af í annað land, þá tárast ég enn þegar ég heyri Stingum af. Þó sonur minn sé orðinn 11 ára og ég komin heim. Lagið er eitthvað sem var eins raunverulegt og heima eða hjartað, draumarnir ,ástin til sonar, verðmæt gleðitár." Tónlist geri henni kleift að hætta að hugsa Hún segist kveikja hún á tónlist þegar hún skrifar. Að hennar sögn skrifar hún best þegar hún hætti að hugsa, og tónlistin geri henni það kleift. „Þannig hlusta ég á Björk ef ég þarf að komast inn í aðra vídd. Ég hlusta á Eyvör þegar ég þarf að komast inn i eitthvað sem ég næ ekki utan um og Kaleo ef ég þarf að finna mojoið. Bríet ef ég þarf að þora elta eitthvað alla leið. Hatara ef ég þarf að skrifa pólitískan pistil. Jónas Sig ef ég þarf að finna sátt. Víking Heiðar ef ég þarf að komast handan við sjálfið, Tómas R ef það vantar djazz dans í orðin. Lay Low til að flæða, Emilíönu Torrini til að fara á létt djúp, Davíð Þór ef ég þarf að komast út fyrir takmarkanir í sjálfri mér, Hildi Guðna þegar ég þarf tónlistina til að leysa flókna hugmynd og skynja hana tæra. Dj flugvél og geimskip þegar ég þarf að vera speisuð. HAM þegar allt tryllt og háfleygt þarf að fá að flakka úr iðrunum. Og Herra Hnetusmjör til að vera með á nótunum. Ég tala nú ekki um Baggalút sem gerir allt skemmtilegt. Eða Sigurrós, þá hættulega góðu vímu. Fjöllin hafa vakað hefur sett bensín í ófá orðin." Hægt er að sjá ræðu Auðar í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Tónlist Dagur íslenskrar tónlistar Mest lesið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Kappsmál sett á ís Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Fleiri fréttir Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Sjá meira