Haukur aftur með slitið krossband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. desember 2022 15:16 Haukur Þrastarson hefur verið meira og meiddur síðan hann gekk í raðir Kielce. epa/GEIR OLSEN Haukur Þrastarson er með slitið krossband í hné og verður frá keppni út tímabilið. Þetta kom í ljós í myndatöku.
Kielce, sem Haukur leikur með, greindi frá þessu á heimasíðu sinni í dag. Fregnirnar koma lítið á óvart enda var strax ljóst að meiðslin væru alvarleg. Haukur meiddist í fyrri hálfleik í leik Kielce og Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu í fyrradag. Þetta er í annað sinn sem Haukur slítur krossband. Það gerðist fyrst í október 2020, í Meistaradeildarleik gegn Elverum, en þá á vinstra hné. Nú er það hægra krossbandið sem er slitið. Það tók Hauk tíma að ná fyrri styrk eftir fyrra krossbandsslitið en hann var kominn á gott ról og búinn að spila mjög vel með Kielce áður en áfallið dundi yfir á miðvikudaginn. Haukur gekk í raðir Kielce frá Selfossi 2020. Hann varð Íslandsmeistari með Selfyssingum 2019. Haukur lék með íslenska landsliðinu á HM 2019 og EM 2020 en missti af HM 2021 og EM 2022 vegna meiðsla og nú er ljóst að hann missir einnig af HM í byrjun næsta árs.
Pólski handboltinn Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Guðlaug Edda á von á barni Sport Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Fótbolti Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Enski boltinn Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Enski boltinn Gaf stoðsendingu á son sinn og setti enn eitt metið Körfubolti Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn Enski boltinn Fyrsta konan fékk styttu sem hún gerði sjálf Sport Sjáðu mörkin hans Orra: Ungi fyrirliðinn okkar mætti aftur með stæl Fótbolti Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Handbolti Fleiri fréttir Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Haukakonur komnar í 1-0 yfir eftir góðan endakafla Haukur Þrastar var stórkostlegur í stórsigri Ljónanna Gísli, Ómar og Elvar stigu stórt skref í átt að þýska titlinum Donni sótti mikilvægt stig gegn lærisveinum Arnórs Valskonur hnykluðu vöðvana í lokaumferðinni Fram tók forystuna í einvíginu gegn ÍR Vill ekki koma heim með „kúkinn á bakinu“ eftir dvöl hjá Barcelona „Hann lýgur bara til að komast undan þessu“ Fjölnir vann fyrsta leikinn Neitaði að hefja seinni hálfleik fyrr en stuðningsmenn hlýddu „Of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það“ „Þetta eru tveir úrslitaleikir“ FH-ingar 1-0 yfir á móti meisturunum Haukarnir léku sér að Mosfellingum í fyrsta leik Strákarnir okkar með Serbíu og Úkraínu í riðli Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð „Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óðinn var fullkominn í flottum sigri Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Elvar með stórleik í flottum sigri Sjá meira