IKEA innkallar spegla Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2023 09:37 Veggfestingarnar sem fylgja speglunum eru taldar geta brotnað. IKEA IKEA hefur ákveðið að innkalla LETTAN spegla til viðgerðar þar sem veggfestingarnar geta brotnað.
Í tilkynningu frá IKEA segir að viðskiptavinir sem eiga LETTAN spegla sem falli undir innköllunina, séu hvattir til að taka þá niður og fá sendar nýjar festingar þeim að kostnaðarlausu. „Öryggi er alltaf efst á forgangslista IKEA og því hefur verið ákveðið að innkalla LETTAN spegla, með framleiðsludagsetningar til og með 2105 (ÁÁVV), til viðgerðar vegna hættu á að veggfestingarnar brotni. Við vöruþróun notast IKEA við strangt áhættumat og prófanir til að tryggja að vörur okkar standist öll gildandi lög og staðla á þeim mörkuðum þar sem þær eru seldar. Þrátt fyrir þessar öryggisprófanir höfum við fengið upplýsingar um að veggfestingarnar fyrir LETTAN speglana eigi það til að brotna og speglarnir geta því dottið niður öllum að óvörum. Því hvetjum við alla sem eiga LETTAN spegla sem falla undir þessa innköllun að hætta notkun þeirra og fá sendar nýjar festingar án endurgjalds. Vinsamlega hafðu samband við þjónustuverið okkar í síma 520 2500 eða netfangið IKEA@IKEA.isog fáðu nýjar festingar með vörunúmerinu 139298/1 sendar til þín, þér að kostnaðarlausu. IKEA biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.
IKEA Innköllun Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira