Hæglætisveður en sums staðar él fyrir norðan og allra syðst Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2023 07:15 Frost verður á bilinu eitt til þrettán stig í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir hæglætis veðri framan af í dag en að það verði sums staðar él fyrir norðan og allra syðst.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði skýjað að mestu og að undir kvöld færist snjókomubakki yfir Suðausturland. Reikna má með norðlægri átt, víða þrír til tíu metrar á sekúndu, og að frost verði á bilinu eitt til þrettán stig. Kaldast verður í innsveitum norðaustanlands en sums staðar frostlaust syðst. „Á morgun verður vindur norðlægur á vesturhelmingi landsins, en suðaustlægur fyrir austan. Éljagangur nokkuð víða og frost um mest allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðvestan 5-13 m/s og snjókoma með köflum á vestanverðu landinu, en líklega þurrt allra vestast. Hæg suðlæg átt og úrkomulítið austantil. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við suðurströndina. Styttir upp vestantil undir kvöld, en fer þá að snjóa fyrir austan og kólnar í veðri. Á sunnudag: Norðlæg átt víða, 3-10 m/s. Stöku él, einkum syðst og austast, annars víða bjartviðri. Frost 2 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Á mánudag: Hæg breytileg átt, yfirleitt léttskýjað og talsvert frost, en austankaldi, stöku él og mildara syðst. Á þriðjudag: Austanstrekkingur og skýjað, en él syðst og austast og áfram frost víðast hvar. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir austanátt, víða dálítil él og áfram svalt í veðri.
Veður Mest lesið Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Sjá meira