Inter vann Lazio og Napólí getur orðið meistari í dag Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. apríl 2023 12:30 Þessir tveir náðu vel saman í dag. Marco Luzzani/Getty Images Inter kom til baka og vann Lazio 3-1 í fyrsta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það þýðir að Napólí getur orðið meistari í fyrsta sinn frá árinu 1990 vinni það leik sinn gegn Salernitana í dag.
Inter er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og þó Lazio sé í 2. sæti þá er ekki beint hægt að segja að liðið sé í titilbaráttu. Henrikh Mkhitaryan hélt hann hefði komið heimamönnum í Inter yfir eftir tæpan hálftíma en markið dæmt af eftir að myndbandsdómari leiksins skoðaði það betur. Það nýtti Felipe Anderson sér og kom Lazio yfir örfáum mínútum síðar, staðan 0-1 í hálfleik. Lazio féll mjög aftarlega í síðari hálfleik og það nýttu heimamenn sér á endanum. Lautaro Martínez jafnaði metin þegar tólf mínútur lifðu leiks eftir sendingu frá Romelu Lukaku. Belgíski framherjinn lagði upp á Robert Gosens aðeins fimm mínútum síðar og Inter komið 2-1 yfir. Martínez var svo aftur á ferðinni í uppbótartíma og Inter vann góðan 3-1 sigur. Sigurinn lyftir Inter upp í 4. sætið með 57 stig líkt og bæði AC Milan og Roma en Inter er með bestu markatöluna. Lazio er áfram með 61 stig í 2. sætinu.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Fótbolti Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Fótbolti David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Slavia Prag - Arsenal | Geta tékkað sig inn á toppinn Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Sjá meira