Bjarki og félagar björguðu jafntefli á seinustu stundu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. maí 2023 18:26 Bjarki Már Elísson í leik með Veszprém. Veszprém Bjarki Már Elísson og félagar hans í ungverska stórliðinu Telekom Veszprém björguðu sér fyrir horn er liðið tók á móti pólska liðinu Kielce í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum í Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 29-29, en heimamenn í Veszprém jöfnuðu metin með seinasta skoti leiksins.
Gestirnir í Kielce byrjuðu af miklum krafti og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins. Þrátt fyrir að heimamönnum hafi tekist að minnka muninn niður í eitt mark í nokkur skipti tókst þeim ekki að jafna og staðan var 13-16, Kielce í vil, þegar flautað var til hálfleiks og gengið var til búningsherbergja. Síðari hálfleikurinn var öllu jafnari og heimamönnum tókst að jafna metin í fyrsta skipti í stöðunni 18-18. Ungverska liðið náði svo mest þriggja marka forskoti í stöðunni 23-20, en gestirnir jöfnuðu á ný stuttu síðar og liðin skiptust á að skora það sem eftir lifði leiks. Enn var jafnt í stöðunni 28-28 þegar rétt tæp mínúta var eftir. Gestirnir tóku þá sitt seinasta leikhlé og náðu forsytunni á ný með marki úr víti þegar 35 sekúndur voru til leiksloka. Veszprém fékk því tækifæri til að kreista fram jafntefli og þar var það Rasmus Lauge sem reyndist hetja heimamanna þegar hann jafnaði metin þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir af leiknum. Lokatölur urðu því 29-29 og liðin fara með jafna stöðu í seinni leikinn sem fer fram í Póllandi að viku liðinni.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Ólafur baðst afsökunar eftir leik: „Ég er bara rosalega viðkvæmur eins og er“ Körfubolti „Komum Gylfa Þór meira í boltann“ Fótbolti „Er þetta ljótasti maður sem þú hefur kysst?“ Körfubolti „Ég fékk að setja þetta ofan í og guðirnir voru með mér í dag“ Körfubolti Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Enski boltinn Klobbaði eldri bróður sinn á stóra sviðinu Fótbolti „Annar oddaleikurinn þar sem við lendum í algjörri þvælu“ Körfubolti „Þetta er eins og eldgamla tómatsósan“ Íslenski boltinn „Settum meiri pressu á þá þegar líða tók á leikinn“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Fram á lífi eftir sigur gegn Haukum Stjarnan áfram í Olís deildinni Íslandsmeistararnir örugglega í úrslit Haukur meistari í Rúmeníu „Verður svakalegur leikur“ Gísli og Ómar drógust gegn meisturunum Sjáðu sigurmark Gísla gegn Veszprém Janus Daði öflugur þegar Pick Szeged féll naumlega úr keppni Viggó og Andri Már frábærir í sigrum sinna liða Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Orri sá farmiðann til Kölnar enda í tætaranum Gagnrýnir HSÍ harðlega: „Enginn metnaður til að gera betur“ Valur í kjörstöðu gegn ÍR Góður leikur Þorsteins Leó dugði ekki í Frakklandi Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur „Ég er smá í móðu“ Haraldur tekur við Fram af Rakel „Treysti bara á að allt þetta fólk mæti“ Uppgjörið: Afturelding - Valur 29-26 | Einvígið ræðst í oddaleik Guðjón Valur missir fyrirliðann sinn Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita
Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Íslenski boltinn