Meistaravon Wolfsburg lifir eftir dramatískar lokamínútur Smári Jökull Jónsson skrifar 21. maí 2023 15:59 Sveindís Jane fagnar hér bikarmeistaratitlinum sem Wolfsburg vann á dögunum ásamt liðsfélögum sínum. Vísir/Getty Von Wolfsburg um þýska meistaratitilinn í knattspyrnu lifir eftir dramatískan sigur liðsins gegn Meppen í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir kom við sögu í liði Wolfsburg.
Wolfsburg og Bayern hafa skipað tvö efstu sæti deildarinnar allt tímabilið og eftir jafntefli Bayern gegn Leverkusen í gær var ljóst að Wolfsburg gæti minnkað muninn niður í tvö stig með sigri. Annað en sigur þýddi að Bayern væri Þýskalandsmeistari. Wolfsburg lenti undir í fyrri hálfleik í dag þegar Sarah Schulte skoraði fyrir Meppen á 30. mínútu. Jill Roord jafnaði metin fyrir Wolfsburg á 64. mínútu en á 84. mínútu virtist sem Lisa Josten væri að tryggja Meppen sigur þegar hún kom liðinu 2-1 yfir. Wolfsburg játaði sig hins vegar ekki sigrað. Pauline Bremer jafnaði metin á 88. mínútu eftir sendingu Alexandra Popp og Popp skoraði svo sjálf sigurmarkið á fimmtu mínútu í uppbótartíma og tryggði Wolfsburg sigurinn. Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af varamannabekknum á 70. mínútu leiksins en Wolfsburg er nú tveimur stigum á eftir Bayern fyrir lokaumferðina. Bayern á titilinn í raun vísan því liðið á heimaleik eftir gegn botnliði Turbine Potsdam í lokaumferðinni. Wolfsburg leikur heima gegn Freiburg í síðustu umferðinni en liðið á einnig eftir að mæta Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þann 3. júní næstkomandi.
Þýski boltinn Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Fleiri fréttir Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira