Fiorentina með magnaða endurkomu gegn lærisveinum Mourinho Aron Guðmundsson skrifar 27. maí 2023 18:24 Úr leik dagsins Vísir/Getty Fiorentina vann í dag magnaðan endurkomusigur á Roma er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni. Lokatölur á Stadio Artemio Franchi leikvanginum 2-1 sigur Fiorentina.
Leikurinn byrjaði vel fyrir Roma því strax á 11. mínútu kom Stephan El-Shaarawy liðinu yfir með marki eftir stoðsendingu Ola Solbakken. Þannig stóðu leikar allt þar til á 85. mínútu þegar að Luka Jovic jafnaði metin fyrir heimamenn í Fiorentina með marki eftir stoðsendingu frá Rolando Mandragora. Stemningin var með Fiorentina í liði þessar mínúturnar og þremur mínútum síðar, nánar tiltekið á 88. mínútu, skoraði Jonathan Ikoné sigurmark leiksins og fullkomnaði um leið magnaða endurkomu heimamanna. Sigurinn gerir það að verkum að Fiorentina er komið upp í 8. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 53 stig. Roma tapaði hins vegar mikilvægum stigum í Evrópubaráttunni og er liðið nú í 6. sæti með 60 stig, einu stigi fyrir ofan Juventus og einu stigi á eftir Atalanta sem situr í 5. sæti. Liðin í kringum Roma eiga öll leik til góða á lærisveina Mourinho og í næstu viku fer síðan fram lokaumferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Áður en að henni kemur á Roma hins vegar úrslitaleik fram undan í Evrópudeildinni þar sem að liðið mætir spænska liðinu Sevilla. Roma á ekki enn séns á því að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu í gegnum ítölsku úrvalsdeildarinnar. Takist liðinu hins vegar að vinna Evrópudeildina tryggir það sér um leið sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.
Ítalski boltinn Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Sjá meira