Suðlæg átt og víða rigning Atli Ísleifsson skrifar 8. júní 2023 07:13 Gera má ráð fyrir af því að hiti verði á bilinu átta til tólf stig, en nokkuð hlýrra austantil. Vísir/Vilhelm Hægfara lægð er nú stödd á Grænlandshafi og má reikna með suðlægri átt í dag, golu, kalda eða stinningskalda og víða rigningu eða súld.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði átta til tólf stig, en á Norðaustur- og Austurlandi verði úrkoman yfirleitt minniháttar og hiti á bilinu ellefu til átján stig. „Á morgun þokast skil lægðarinnar til austurs. Vindur verður þá suðvestlægari og það dregur úr vætu vestanlands, dálitlar skúrir þar seinnipartinn, en áfram rigning á Suðausturlandi. Á norðaustanverðu landinu verður hins vegar yfirleitt þurrt. Hiti breytist lítið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og rigning eða súld, en dálitlar skúrir vestanlands þegar líður á daginn. Hiti 7 til 13 stig. Úrkomulítið um landið norðaustanvert með hita að 18 stigum. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Á laugardag: Vestan og suðvestan 5-13 og stöku skúrir, en léttir smám saman til sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 15 stig, mildast á Suðaustur- og Austurlandi. Á sunnudag: Suðvestan og vestan 5-13 og víða léttskýjað, en þykknar upp vestast á landinu. Hiti 8 til 13 stig, en 12 til 20 stig um landið austanvert. Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og bjartviðri, en skýjað með köflum vestantil. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðaustlæg átt og súld eða rigning með köflum, en léttskýjað um landið norðaustanvert. Hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Erlent Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Erlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fleiri fréttir Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Sjá meira