Norðanátt á landinu en lægir og hlýnar eftir helgi Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. júlí 2023 07:53 Krakkar að leik í Vestmannaeyjum en þar verður ágætlega sólríkt og hlýtt næstu daga. Vísir/Vilhelm Norðan- og norðvestanátt ríkir enn á landinu með vætusömu og svölu veðri norðanlands. Það er heldur hlýrra og þurrara fyrir sunnan en þó skúrir á stöku stað. Eftir helgi lægir og hlýnar, einkum nyrðra.
Þetta segir um veðrið næstu daga á vef Veðurstofunnar. Í dag má búast við norðan og norðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu en sums staðar hvassari vindstrengir við fjöll. Þá verður dálítil rigning um norðanvert landið, en stöku skúrir syðra, einkum seinnipartinn. Á sunnudag hvessir suðaustantil en lægir heldur og styttir upp norðvestanlands. Hiti víða um land fimm til tíu stig, en allt að sautján stig sunnan heiða. Í vikunni verður sólríkt á Suður- og Suðvesturlandi og nær hiti þar mest upp í nítján stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Svona verða veðurhorfur næstu daga samkvæmt spá Veðurstofunnar: Á sunnudag: Norðan átta til þrettán metrar á sekúndu, en hægari vindur inn til landsins. Dálítil væta um norðanvert landið og hiti fimm til tíu stig, en víða bjartviðri sunnantil og hiti að átján stigum yfir daginn. Á mánudag og þriðjudag: Norðlæg átt fimm til tíu en tíu til fimmtán metrar á sekúndu með norðausturströndinni. Dálítil væta öðru hverju norðaustanlands og hiti fimm til tíu stig, en annars bjart með köflum og hiti að átján stigum. Á miðvikudag og fimmtudag: Hæg norðvestlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en strekkingur og smá væta austast. Hiti átta til nítján stig, hlýjast sunnanlands. Á föstudag: Hægviðri, bjart með köflum og hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira