Fínasta veður í kortunum Ólafur Björn Sverrisson skrifar 4. ágúst 2023 07:25 Það er fínasta veður í kortunum. vísir/vilhelm Nú fer stærsta ferðamannahelgi ársins að bresta á og veðurspá virðist hafa skánað síðasta sólarhringinn. „
Því er fínasta ferðaveður í kortunum um land allt, og ekki er útlit fyrir veðurviðvaranir um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Í dag má búast við suðlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s í dag og allvíða skúrir, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Svipað veður verði á morgun en ívið úrkomumeira. Hiti verður 8 til 16 stig, en svalara við norður- og austurströndina á morgun. Sunnanlands er útlit fyrir hæga suðlæga átt í dag, föstudag, og stöku skúrir en á morgun má búast við dálítilli rigningu. Fyrir vestan er sama staða en úrkomuminna og yfirleitt bjartara á Vestfjörðum. Norðantil verður norðlæg breytileg átt og bjart með köflum, en skúrir inn til landsins síðdegis. Austanlands verður hæg breytileg átt og bjart með köflum og þurrt að kalla á laugardag en dálítil væta verður sunnudag og mánudag. Það veðrur þurrt að mestu.veðurstofan Veðurhorfur næstu dagana Á laugardag:Hæg austlæg eða breytileg átt og allvíða skúrir, einkum síðdegis, en dálítil rigning syðst. Hiti 6 til 16 stig, svalast við norðurströndina.Á sunnudag:Austlæg átt, 3-10 m/s og dálítil rigning eða skúrir á sunnanverðu landinu, en yfirleitt þurrt og bjartara fyrir norðan. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestantil.Á mánudag (frídagur verslunarmanna):Áframhaldandi austlæg átt. Líkur á skúrum um landið suðvestanvert, einkum síðdegis, annars víða þurrt. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag:Norðlæg átt, 3-8 m/s. Lengst af þurrt og milt, en fremur svalt á Norðaustur- og Austurlandi.Á miðvikudag:Vestlæg átt, skýjað og úrkomulítið vestantil, en víða bjart veður fyrir austan. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðaustanlands.Á fimmtudag:Útlit fyrir hæga suðvestanátt. Skýjað, en úrkomulítið um landið vestanvert, en annars skýjað með köflum. Milt í veðri.
Veður Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira