Liðin í Ryder-bikarnum fullmönnuð Smári Jökull Jónsson skrifar 6. september 2023 22:00 Luke Donald er fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum. Vísir/Getty Þjálfarar bæði liðs Evrópu og Bandaríkjanna í Ryder-bikarnum hafa tilkynnt val sitt á leikmönnum fyrir mótið sem fram fer á Ítalíu í ár. Tæpur mánuður er í að fyrsta höggið í keppninni verði slegið.
Ryder-bikarinn er keppni á milli úrvalsliðs Evrópu og Bandaríkjanna. Keppnin fer fram annað hvert ár og er ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu en í ár verður það haldið rétt utan við Róm á Ítalíu. Ákveðið mörg sæti í hvoru liði eru tekin frá fyrir leikmenn sem efstir eru á stigalistum en þjálfarar liðanna geta síðan valið sex leikmenn hvor til að fylla öll pláss í hópnum. Introducing #TeamEurope pic.twitter.com/TxTwXYNu5a— Ryder Cup Europe (@RyderCupEurope) September 4, 2023 Englendingurinn Luke Donald er fyrirliði Evrópuliðsins í keppninni í ár og á dögunum tilkynnti hann hverjir munu skipa lið Evrópu þegar mótið hefst þann 29. september næstkomandi. Donald gat valið sex leikmenn fyrir utan þá sem þegar höfðu tryggt sér sæti og hlutu þeir Ludvig Åberg, Tommy Fleetwood, Nicolai Hojgaard, Shane Lowry, Justin Rose og Sepp Straka náð fyrir augum Donald sem sjálfur er reynslumikill keppandi í Ryder-bikarnum. Þessir sex bættust í hóp þeirra Rory McIlroy, Jon Rahm, Robert Macintyre, Viktor Hovland, Tyrell Hatton og Matt Fitzpatrick sem þegar höfðu tryggt sér sæti í liðinu. PSA: It's officially Ryder Cup month pic.twitter.com/3dOknJYiWO— Ryder Cup USA (@RyderCupUSA) September 1, 2023 Zach Johnson er fyrirliði liðs Bandaríkjanna. Hann valdi Sam Burns, Rickie Fowler, Brooks Koepka, Collin Morikawa, Jordan Spieth og Justin Thomas í sitt lið en þeir Scottie Scheffler, Wyndham Clark, Brian Harman, Patrick Cantlay, Max Homa og Xander Schauffele tryggðu sér sjálfir sæti í liðinu. Bandaríkjamenn eiga titil að verja en þeir unnu stórsigur á Evrópuliðinu fyrir tveimur árum þegar mótið fór fram í Bandaríkjunum. Lokatölur urðu 19-9 og er það mesti munur sem orðið hefur á liðunum í sögu Ryder-bikarsins. Evrópa hefur ekki tapað móti á heimavelli síðan árið 1993 þegar mótið fór fram á hinum sögufræga Belfry-velli.
Ryder-bikarinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira