Jaguar kynnir fyrsta tengiltvinnbílinn F-Pace PHEV Jaguar á Íslandi 13. október 2023 15:00 Rafhlaðan er 17,1 kWh sem gerir kleift að aka eingöngu á rafmagni allt að 65 km við bestu kjöraðstæður samkvæmt WLTP. Jaguar við Hestháls kynnir nk. laugardag, 14. október milli kl. 12 og 16, aldrifna jepplinginn F-Pace SE R-DYN í tengiltvinnútfærslu (PHEV) sem margir aðdáendur F-Pace hér á landi hafa beðið eftir með óþreyju.
Jaguar F-Pace PHEV, sem er að langmestu leyti smíðaður úr áli, er ríkulega búinn þæginda- og öryggisbúnaði og ber allur frágangur farþegarýmisins vott um afar fágað handbragð hönnuða Jaguar. Mikil hröðun og skjót hleðsla Tengiltvinnútgáfan F-Pace SE R-DYN PHEV er búin kraftmikilli fjögurra strokka bensínvél og 105 kW rafmótor sem saman framleiða 404 hestöfl og hafa 640 Nm tog við 8 gíra sjálfskiptinguna, enda er hröðunin frá 0-100 km/klst. aðeins 5,3 sekúndur. Rafhlaðan er 17,1 kWh sem gerir kleift að aka eingöngu á rafmagni allt að 65 km við bestu kjöraðstæður samkvæmt WLTP. Aðeins tekur um 30 mínútur að hlaða rafhlöðuna frá 0-80%. Vandaður búnaður Meðal ríkulegs staðalbúnaðar Jaguar F-Pace SE R-DYN PHEV má nefna tólf mismunandi stillingar á upphitanlegum framsætunum, Meridan hljómflutningskerfi sem m.a. er stjórnað á rúmlega 11 tommu PiVi afþreyingarsnertiskjá, hita í stýri, framrúðu, rúðupissi og hliðarspeglum, nálgunarvara framan og aftan auk þess sem bíllinn er búinn 20 tommu tvílitum álfelgum, rafdrifnum afturhlera og sjálfvirkum Premium LED-aðalljósum með einkennandi dagljósum. Auk staðalbúnaðar er hægt að panta ýmsan aukabúnað með bílnum, svo sem glerþak, 360° myndavélakerfi, langboga og fleira.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira