Um sextán stiga frost við Mývatn Atli Ísleifsson skrifar 24. nóvember 2023 07:24 Það blæs vindur úr suðri í dag, ýmist gola eða kaldi og þurrt veður. Vísir/Vilhelm Norðanátt færði kaldan loftmassa yfir landið í gær og var allvíða hægur vindur og bjart yfir í nótt. Það voru því nokkuð góðar aðstæður fyrir frostið að ná sér á stik og kaldast mældist 16,1 stigs frost við Mývatn.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að í dag blási vindur úr suðri, ýmist gola eða kaldi og þurrt veður. Á vestanverðu landinu megi hins vegar búast við stinningskalda og dálítilli rigningu eða slyddu þegar líður á daginn. „Sunnanáttin færir okkur mildari loftmassa og hitatölurnar þokast uppávið. Á morgun er útlit fyrir fremur hæga sunnanátt. Skýjað á landinu og þurrt að mestu, en sums staðar smá væta vestantil. Hiti 2 til 7 stig. Áfram hæglætisveður á sunnudag og víða þurrt. Það stefnir því í rólega helgi í veðrinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan 3-8 m/s. Skýjað á landinu og sums staðar smá væta vestantil. Hiti 2 til 7 stig. Á sunnudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins. Á mánudag: Sunnan 8-13 m/s og fer að rigna, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 7 stig. Á þriðjudag: Suðvestlæg átt og stöku él á vestanverðu landinu. Annars rigning, slydda eða snjókoma fram eftir degi, einkum suðaustanlands. Kólnandi veður. Á miðvikudag: Norðlæg eða breytileg átt og stöku él, en bætir í vind og úrkomu norðan- og austanlands seinnipartinn. Frost 0 til 7 stig. Á fimmtudag: Ákveðin norðanátt og él, en bjartviðri sunnan heiða. Vægt frost.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira