Von á rigningu eða snjókomu seinni partinn Atli Ísleifsson skrifar 12. desember 2023 07:43 Á morgun kemur alldjúp lægð inn á Grænlandshaf. Vísir/Vilhelm Nú í morgunsárið er hægur vindur á landinu og yfirleitt þurrt og kalt veður. Úrkomusvæði mun nálgast dálítið úr vestri í dag og mun þykkna upp á Suður- og Vesturlandi. Þannig má má búast við rigningu eða snjókomu með köflum á þeim slóðum síðdegis og mun hlýna smám saman. Austanlands verður lengst af þurrt og bjart.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar, en frost verður á bilinu tvö til ellefu stig í dag. Fram kemur að á morgun komi svo alldjúp lægð inn á Grænlandshaf. „Hún beinir til okkar hlýrri suðlægri átt, allhvass vindur eða stinningskaldi og talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en norðaustantil á landinu verður úrkoman slitróttari. Annað kvöld dregur úr vindi um tíma og það kólnar með skúrum eða slydduéljum. Á fimmtudag er svo útlit fyrir allhvassa eða hvassa suðvestanátt með éljum, en yfirleitt þurrt veður um landið norðaustanvert,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Sunnan 10-18 m/s og talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en væta með köflum norðaustantil. Hiti 3 til 10 stig. Heldur hægari um kvöldið og kólnar með skúrum eða slydduéljum. Á fimmtudag: Suðvestan 15-23 og él, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti kringum frostmark. Á föstudag: Suðvestan og sunnan 13-20 og allvíða slydda eða snjókoma, en rigning suðaustantil. Éljagangur síðdegis, en styttir upp norðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðvestanátt og él, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti nálægt frostmarki. Á sunnudag: Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustantil. Hlýnar í veðri. Á mánudag: Norðvestan- og vestanátt og él. Kólnandi.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira