Smálægðir og lægðadrög á sveimi við landið Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2023 07:12 Frost á landinu verður víða núll til sjö stig, en frostlaust með suðurströndinni. Vísir/Vilhelm Smálægðir og lægðadrög eru nú á sveimi við landið og verður fremur hæg suðvestlæg átt ríkjandi. Það verður þurrt að kalla norðaustanlands, en annars staðar él á víð og dreif.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði vaxandi vestanátt og efnismeiri él seint í kvöld og nótt, einnig áfram á morgun, en úrkomulaust að kalla eystra. Það mun svo draga heldur úr vindi og éljum annað kvöld. Frost á landinu verður víða núll til sjö stig, en frostlaust með suðurströndinni. „Á miðvikudag er búist við lægðardragi frá Grænlandhafi, sem hreyfist norðaustur yfir landið. Hvessir þá talsvert úr austri og fer að snjóa, en hlýnar jafnframt þ.a. rignir við suðurströndina. Þegar lægðadragið er komi yfir Norður- og Austurland, snýst í stífa vestan- og norðvestanátt með éljagangi og kólnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vestan og norðvestan 8-15 m/s og él, en þurrt að kalla austantil. Úrkomuminna síðdegis. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst. Á miðvikudag: Gengur í austlæga átt, 8-15 m/s með snjókomu, en slyddu eða rigningu syðst og heldur hlýnandi veðri. Snýst í norðan- og norðvestanátt með éljagangi seinnipartinn og kólnar aftur. Á fimmtudag: Norðan og norðvestan 8-15 m/s og éljagangur eða snjókoma, en bjart með köflum sunnan heiða. Talsvert frost. Á föstudag (vetrarsólstöður), laugardag (Þorláksmessa) og sunnudag (aðfangadagur jóla):Útlit fyrir áframhaldandi norðlæga átt með éljum víða um land, en bjartviðri syðra. Harðnandi frost.
Veður Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira