Léttir til sunnan- og vestanlands síðdegis Atli Ísleifsson skrifar 15. janúar 2024 07:06 Spáð er frosti, þremur til tólf stigum í dag. Vísir/Vilhelm Það er lítilsháttar snjókoma í flestum landshlutum núna í morgunsárið og er gert ráð fyrir norðlægri eða breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, en átta til fimmtán metrum á sekúndu austast á landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það létti til vestantil síðdegis og síðar líka sunnanlands en bæti í él og hvessi um norðaustanvert landið í kvöld. Er spáð frosti þremur til tólf stigum í dag þar sem verður kaldast inn til landsins. „Norðlæg átt 5-13 á morgun en 13-18 fyrir austan. Él á norðan- og austanverðu landinu en bjart með köflum suðvestanlands. Áfram kalt í veðri. Svipað veður á miðvikudag en dregur aðeins úr vindi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan 5-13 m/s, en 13-18 austast. Éljagangur eða snjókoma norðan- og austanlands, en annars bjart með köflum. Frost 3 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á miðvikudag: Norðan 8-15, hvassast austast. Víða él eða dálítil snjókoma, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Talsvert frost á öllu landinu. Á fimmtudag: Breytileg átt 3-10 og snjókoma eða él víða um land, en úrkomulítið norðaustantil. Áfram kalt í veðri en dregur úr frosti suðvestantil. Á föstudag: Vaxandi austanátt með snjókomu, en síðar slyddu eða rigningu syðst á landinu, en úrkomulítið fyrir norðan fram að kvöldi. Frost 5 til 14 stig en nálægt frostmarki við suðurströndina. Á laugardag: Austlæg átt með snjókomu víða á landinu, en slydda syðst. Frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan, en rétt yfir frostmarki við suðurströndina. Á sunnudag: Útlit fyrir vestlæga átt. Bjart með köflum en sums staðar dálítil snjókoma. Frost um mest allt land.
Veður Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Dálítil væta en fremur hlýtt Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Sjá meira