Svöl suðvestanátt í dag en stormur á morgun Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2024 07:12 Um og eftir hádegi á morgun er útlit fyrir að það hvessi á sunnanverðu landinu, hvassviðri eða stormur þar seinnipartinn og varasamt ferðaveður. Vísir/Vilhelm Hægfara lægð er nú á Grænlandshafi og beinir hún til okkar svalri suðvestlægri átt þar sem víða má gera ráð fyrir tíu til átján metrum á sekúndu. Spáð er dimmum éljum og að hvassast verði í éljahryðjum.
Á vef Veðurstofunnar segir að yfirleitt verði úrkomulítið um landið norðaustanvert og að frost á landinu verði á bilinu núll til sex stig. „Vestan kaldi eða strekkingur á morgun og áfram él, en um og eftir hádegi er útlit fyrir að það hvessi á sunnanverðu landinu, hvassviðri eða stormur þar seinnipartinn og varasamt ferðaveður. Þessi vestanstrengur hefur verið nokkuð á reiki í spám síðustu daga og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám. Annað kvöld dregur svo úr vindi og ofankomu. Þess má geta að á morgun á ört dýpkandi lægð að fara til norðausturs fyrir suðaustan land. Spár gera ráð fyrir að hún muni ekki hafa mikil áhrif hér á landi, en hún á að valda miklu illviðri í Færeyjum og Vestur-Noregi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestan 8-15 m/s, en 15-20 sunnantil seinnipartinn. Víða él og frost 0 til 8 stig. Dregur úr vindi um kvöldið. Á fimmtudag: Suðvestan 8-15 og skúrir eða él, en hægari seinnipartinn og allvíða rigning eða slydda. Lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hlýnandi, hiti 1 til 8 stig undir kvöld. Á föstudag: Gengur í suðvestan 13-20 og kólnar með éljum, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 7 stig síðdegis. Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt og él, en lengst af þurrt á Austurlandi. Frost 1 til 12 stig. Á sunnudag og mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og él, en þurrt að kalla um landið suðvestanvert. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira