Varað við asahláku, hálku og miklum leysingum Atli Ísleifsson skrifar 1. febrúar 2024 07:13 Brimbrettakappi við Seltjarnarnes fyrr í vikunni. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi suðvestanátt á landinu í dag en að hún verði þó ekki jafn hvöss og í gær. Má reikna með að vindur verði yfirleitt átta til fimmtán metrar á sekúndu. Það hlýnar þegar líður á daginn og hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna asahláku.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði skúrir eða él á sunnan- og vestanverðu landinu en að mestu þurrt norðaustantil. „Seint í dag dregur úr vindi og hitaskil koma að suðurströnd landsins. Í kvöld verður hiti orðinn 4 til 8 stig sunnan- og vestanlands með rigningu og hláku, gular viðvaranir vegna asahláku taka gild ein af annarri sitthvoru megin við miðnætti. Úrkomusvæðið fer svo norður yfir landið en þar sem hiti verður nær frostmarki norðantil verður slydda eða snjókoma,“ segir á vef Veðurstofunnar. Gular viðvaranir taka gildi á Suausturlandi klukkan 20, Faxaflóasvæðinu og Suðurlandi klukkan 22 í kvöld og 23 á höfuðborgarsvæðinu. Eru þær allar í gildi til um klukkan 6 á morgun. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Á morgun gengur síðan í suðvestan 13-23 m/s með skúrum og síðar éljum þegar tekur að kólna aftur. Hvassast verður í éljahriðjum suðvestantil á landinu. Frost 0 til 6 stig annað kvöld. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Gengur í suðvestan 15-23 m/s og kólnar með éljum, en léttir til á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 7 stig síðdegis. Á laugardag: Norðan og norðvestan 5-13 m/s, en suðvestan 13-20 sunnantil fram eftir degi. Víða él og frost 0 til 9 stig. Á sunnudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 5-10 m/s og dálítil él, en bjart fram eftir degi sunnantil. Frost 2 til 12 stig, kaldast norðanlands. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og dálítil él á víð og dreif. Kalt í veðri. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir norðlæga átt með él, en víða léttskýjað um sunnanvert landið.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira