Alexandra áfram eftir vító gegn Inter Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2024 16:47 Alexandra Jóhannsdóttir komst undanúrslit bikarsins með Fiorentina. Getty/Marco Luzzani Alexandra Jóhannsdóttir og stöllur hennar í Fiorentina eru komnar áfram í undanúrslit ítalska bikarsins í fótbolta eftir maraþoneinvígi við Inter.
Um tveggja leikja einvígi var að ræða en úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni í dag. Fyrri leiknum hafði lokið með 2-2 jafntefli og eftir níutíu mínútna leik í dag var staðan 0-0, svo einvígið var jafnt og því þurfti að framlengja. Ítalska landsliðskonan Michela Ambiaghi kom Inter svo yfir í fyrri hálfleik framlengingarinnar en sænska landsliðskonan Pauline Hammarlund náði að jafna metin í seinni hálfleiknum, tíu mínútum fyrir lok framlengingar. Alexandra hafði komið inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá Fiorentina en hún var ekki á meðal þeirra sem tóku spyrnu í vítaspyrnukeppninni. Þar reyndust taugar Fiorentina-kvenna sterkari en þær skoruðu úr fyrstu fjórum spyrnum sínum á meðan að tvær af fyrstu þremur spyrnum Inter fóru forgörðum. Þar með tryggði Fiorentina sér sigur og varð fyrsta liðið inn í undanúrslitin. AC Milan bætist alveg örugglega við síðar í dag, og Juventus með Söru Björk Gunnarsdóttur innanborðs er 4-0 yfir í einvígi sínu við Sampdoria fyrir seinni leikinn á morgun. Þá ráðast einnig úrslitin í einvígi Napoli og Roma þar sem Napoli er með 2-0 forskot eftir fyrri leikinn.
Ítalski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Enski boltinn Fleiri fréttir Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sjá meira