Kristian lék allan leikinn í grátlegu jafntefli Smári Jökull Jónsson skrifar 18. febrúar 2024 15:29 Kristian Nökkvi með boltann í leiknum gegn Nijmegen í dag. Vísir/Getty Kristian Nökkvi Hlynsson og samherjar hans í Ajax gerðu í dag 2-2 jafntefli gegn Nijmegen í hollensku deildinni í dag.
Kristian var í byrjunarliði Ajax í dag sem hefur í smá brasi í síðustu leikjum. Liðið hafði ekki unnið síðustu tvo deildarleiki sína en vann síðustu þrjá leiki þar á undan. Í vikunni gerði Ajax síðan jafntefli við Bodö/Glimt í Sambandsdeildinni eftir að hafa misst niður tveggja marka forskot á lokamínútunum. Brian Brobbey kom heimaliði Ajax yfir á 7. mínútu í dag og staðan í hálfleik var 1-0. Sjálfsmark frá Jorrel Hato á 61. mínútu gerði það að verkum að Nijmegen jafnaði metin en Carlos Forbs kom Ajax yfir á nýjan leik á 79. mínútu og lengi vel leit það mark út fyrir að verða sigurmarkið. Nijmegen tókst hins vegar að jafna metin á fimmtu mínútu uppbótartíma og 2-2 jafntefli staðreynd. Markið var skoðað í lengri tíma í VAR sem komst loks að þeirri niðurstöðu að markið skyldi standa. Ajax er því án sigurs í síðustu þremur deildarleikjum og í síðustu fjórum leikjum í öllum keppnum. Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leikinn fyrir Ajax og nældi sér í gult spjald á 87. mínútu leiksins. Ajax er í 5. sæti hollensku deildarinnar en PSV er langefst og með þrettán stiga forskot á toppi deildarinnar.
Hollenski boltinn Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Fótbolti Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Fleiri fréttir Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Sjá meira