Víða vindur á landinu Jón Þór Stefánsson skrifar 24. febrúar 2024 07:35 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina norðlægri átt að Íslandi í dag. Þetta kemur fram í textalýsingu Veðurstofunnar.
Víða verður vindur í dag, en hvassast verður austantil á landinu. Á suðurhluta landsins verður þurrt og bjart veður víða, en á Norðurlandi og Austurlandi má búast við dálitlum éljum. Búist er við því að frost verði núll til fimm stig, en kólna mun frekar í kvöld. Á morgun verður áttin breytileg og vindur yfirleitt hægari. Víða verður bjartviðri og frost eitt til tólf stig. Síðdegis er búist við því hægt vaxandi sunnanátt komi og að smám saman muni hlýna. Þá mun þykkna upp vestantil á landinu og seint annað kvöld er útlit fyrir rigningu eða snjókomu á þeim slóðum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag:Breytileg átt, víða 5-13 m/s og bjart með köflum. Frost 1 til 12 stig. Vaxandi sunnanátt um kvöldið og þykknar upp vestantil með slyddu eða snjókomu. Hlýnar í veðri.Á mánudag:Sunnan 13-23 um morguninn, hvassast í vindstrengjum norðanlands, en dregur síðan smám saman úr vindi. Víða rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 2 til 9 stig.Á þriðjudag:Norðvestan og norðan 10-18 og kólnar með snjókomu eða éljum, en styttir upp sunnanlands. Frost 0 til 8 stig síðdegis og dregur úr vindi og ofankomu.Á miðvikudag:Suðlæg átt og slydda eða snjókoma með köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti kringum frostmark.Á fimmtudag:Ákveðin norðanátt og snjókoma eða slydda, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Heldur kólnandi.Á föstudag:Norðanátt og snjókoma, en þurrt að kalla sunnan- og vestantil. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira