Væta og hlýindi framan af degi en hvessir síðdegis Atli Ísleifsson skrifar 7. mars 2024 07:03 Hiti á landinu verður á bilinu þrjú til tíu stig í dag. Vísir Allmikil lægð á vestanverðu Grænlandshafi veldur því að austan- og suðaustanáttir leika um landið og fylgir þeim lítilsháttar væta og hlýindi. Lengst af verður þó þurrviðri fyrir norðan.
Á vef Veðurstofunnar segir að seinnipartinn nálgist vaxandi lægðardrag úr suðaustri og hvessi því talsvert og fari að rigna sunnantil í kvöld. Hiti á landinu verður á bilinu þrjú til tíu stig. „Ferðalangar ættu því að reikna með snörpum vindhviðum við fjöll syðra í kvöld og fram á nótt, í Mýrdal, undir Eyjafjöllum og á Kjalarnesi, svo dæmi séu tekin. Fremur hægar suðaustanáttir og lítilsháttar væta á morgun (föstudag), en þurrviðri fyrir norðan. Áfram svipað veður um helgina, en kólnar smám saman og má því búast við slyddukenndari úrkomu, einkum á sunnudag,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustan 8-13 m/s og lítilsháttar rigning, en 5-10 m/s og bjartviðri norðan heiða. Hiti 2 til 9 stig, mildast syðst. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Austlæg eða suðaustlæg átt, 5-13 m/s og bjart með köflum, hvassast og dálitlar skúrir eða slydduél við suður- og austurströndina. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost norðan heiða. Á þriðjudag: Hæg suðvestlæg átt og dálítil rigning eða slydda, en þurrt norðaustantil. Hiti nærri frostmarki. Á miðvikudag: Breytilegar áttir, skýjað með köflum og él á stöku stað. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira