Skýjað að mestu en úrkoma eða rigning sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 9. apríl 2024 07:14 Hiti verður á bilinu núll til sex stig. Vísir/Vilhelm Grunn lægð lónar úti fyrir suðausturströndinni og fylgir henni dálítil úrkoma á sunnanverðu landinu, ýmist snjókoma eða rigning.
Á vef Veðurstofunnar segir að í öðrum landshlutum verði skýjað að mestu og lítilsháttar él á víð og dreif. Hiti verður á bilinu núll til sex stig, en vægt frost á Norðausturlandi. „Á morgun er spáð austan 3-8 m/s, en 10-15 syðst. Dálítil él eða skúrir sunnan- og vestanlands og hiti 0 til 5 stig, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi og frost 0 til 5 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Hiti verður á bilinu núll til sex stig, en vægt frost á Norðausturlandi.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan 3-8 m/s, en 10-15 syðst. Dálítil él eða skúrir sunnan- og vestanlands, annars skýjað með köflum og þurrt. Hiti 0 til 5 stig, en frost 0 til 5 stig á Norður- og Austurlandi. Á fimmtudag: Norðaustan 8-15. Rigning, slydda eða snjókoma á austurhelmingi landsins, en yfirleitt þurrt vestantil. Vægt frost í innsveitum norðaustanlands, en allt að 7 stiga hiti yfir daginn um landið suðvestanvert. Á föstudag og laugardag: Ákveðin norðaustan- og austanátt með snjókomu eða éljum, en slydda við suðurströndina. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust syðst. Á sunnudag: Austlæg átt og él, en þurrt norðantil á landinu. Kalt í veðri. Á mánudag: Vestlæg átt og dálítil él, en bjartviðri um landið austanvert. Áfram kalt.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira