Andri Lucas aðeins nokkrar mínútur að halda upp á nýja samninginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2024 13:59 Andri Lucas Guðjohnsen er kominn með tíu mörk fyrir Lyngby Boldklub í dönsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Getty/ Jan Christensen / Íslenski landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen var á skotskónum með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Mark hans dugði þó ekki til
Lyngby tapaði 2-1 á móti Viborg á útivelli en liðin eru í neðri hluta úrslitakeppni dönsku deildarinnar. Viborg náði þar með átta stiga forskoti á Lyngby og svo gott sem gulltryggði sæti sitt í deildinni. Lyngby situr í síðasta örugga sætinu, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Þrír Íslendingar voru í byrjunarliði Lyngby í leiknum, Andri Lucas, Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson. Lyngby gekk frá kaupunum á Andra Lucas í vikunni en hafði verið á láni hjá liðinu frá Norrköping. Hann skrifaði undir nýjan þriggja ára samning og var fljótur að halda upp á hann. Andri Lucas kom Lyngby yfir eftir aðeins rúmlega þriggja mínútna leik. Magnus Jensen skallaði hornspyrnu til hans og Andri kom boltanum í netið. Þetta var tíunda deildarmark Andra fyrir Lyngby á leiktíðinni en hann hafði fengið fá tækifæri með Norrköping í Svíþjóð. Andri hefur aftur á móti verið frábær með danska liðinu. Viborg jafnaði metin á 25. mínútu leiksins með marki Anosike Ement. Í seinni hálfleiknum kom Magnus Westergaard Viborg síðan yfir í 2-1 á 76. mínútu.Sævar Atli var tekinn af velli á 69. mínútu en þá var staðan 1-1. Andri og Kolbeinn kláruðu leikinn.
Danski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Í beinni: Valur - Haukar | Toppslagur og Valsmenn eiga harma að hefna Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fleiri fréttir Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Sjá meira