Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Jón Ísak Ragnarsson skrifar 19. maí 2024 15:56 Nýkrýndi Michelin-kokkurinn Arturo Rivera Martínez undirbýr takó að hætti hússins. Fernando Llano/AP Mexíkóski takóstaðurinn Tacos El Califa de León í San Rafael hverfinu í Mexíkóborg, hlaut nýverið Michelin-stjörnu, en staðurinn er sextándi veitingastaður landsins sem hlýtur þessa eftirsóttu nafnbót.
Tacos El Califa de León sker sig nokkuð frá hinum fimmtán Michelin-veitingastöðum landsins, sem allir eru dýrir veitingastaðir í fínni kantinum. Tacos El Califa er tæplega tíu fermetra götubás , þar stálplatan sem maturinn er steiktur á tekur upp hálft plássið. Hinn helmingur hússins er yfirleitt stappaður af standandi fólki sem heldur plastdiskum með heitu takói. Veitingastaðurinn er tæplega 10 fermetrar að stærð.Fernando Llano/AP Á matseðlinum eru bara fjórir réttir í boði, allt mismunandi gerðir af takói, og allt úr nautakjöti. „Leyndarmálið er einfaldleikinn í takóinu okkar. Í því er aðeins tortilla, rauð eða græn sósa og ekkert meira. Svo er kjötið í hæsta gæðaflokki,“ sagði nýkrýndur Michelin-kokkurinn Arturo Rivera Martínez við AP. Hann mælti með drykknum cocacola með matnum sem hann býður upp á. Til að reiða fram takó að hætti hússins, grípur Rvera Martínez næfutþunnan bita af nautafillet og skellir því á sjóðheita stálplötuna, kreistir yfir bitann smá salt og hálfa límónu. Svo er tortilladeigið hitað upp á sömu plötu. Eftir tæplega mínútu snýr hann kjötinu og tortillunni við í örskotsstundu, skellir þessu svo á plastdisk og kallar fram nafn þess, sem pantaði. Viðskiptavinurinn bæti svo þeim sósum sem honum hugnast við eftir eigin höfði. Staðurinn nýtur mikilla vinsælda í MexíkóborgISAAC ESQUIVEL/EPA Kokkurinn, Rivera Martínez vildi ekki deila öllum leyndarmálum sínum, en gaf þó upp að nákvæmt hitastig pönnunnar skipti sköpum, hún er hituð upp í svakalegar 360 gráður. Verðlagning telst nokkuð há í mexíkóskum samanburði, en hvert takó kostar um fimm dollara. Af vinsældum staðarins að dæma virðist það þó ekki koma að sök.
Mexíkó Matur Michelin Veitingastaðir Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið