Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júní 2024 11:38 Dæmi um færslu frá Temu Europe þar sem upphengigræja er auglýst til sölu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vill hvetja neytendur til að gæta varúðar við kaup á vörum frá netverslunum utan Evrópu sem auglýsa vörur á samfélagsmiðlum sem eru töluvert undir markaðsverði.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HMS. Ekki er minnst á einstakar netverslanir í tilkynningunni en uppgangur kínversku netverslunarinnar Temu undanfarnar vikur hefur vakið mikla athygli. HMS og önnur markaðseftirlitsstjórnvöld fylgjast með því að vörur á íslenskum markaði uppfylli öryggiskröfur. „Það er þó farsælast að neytendur séu meðvitaðir um eigin vörukaup og velji aðeins vörur sem þeir telja sig geta verið vissir um að uppfylli þær kröfur sem gilda um vöruöryggi innan EES-svæðisins,“ segir í tilkynningunni. „Mikilvægt er að neytendur séu gagnrýnir þegar kemur að „kjarakaupum“ frá erlendum netverslunum og spyrji sig af hverju verðið sé svona lágt samanborið við evrópskar vörur. HMS bendir sérstaklega á að mjög ódýrar vörur frá netverslunum utan Evrópu uppfylla að öllum líkindum ekki kröfur sem gerðar eru til þeirra í Evrópu. Nauðungarvinna við framleiðslu varanna getur líka skýrt lágt vöruverð.“ Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna ræddi kínverska netverslunarrisann Temu í Reykjavík síðdegis fyrir helgi. Sérlega lág verð samanborið við sambærilegar vörur í öðrum netverslunum gefi vísbendingu um að hlutaðeigandi vörur hafi ekki verið prófaðar með tilliti til öryggisatriða. „Neytendur ættu því að íhuga hvort barnaleikföng, föt, snyrtivörur og aðrar vörur gætu innihaldið efni sem eru bönnuð samkvæmt evrópskum stöðlum,“ segir í tilkynningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Verslun Kína Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira