Brimborg lækkar verð á Polestar Brimborg 7. júní 2024 13:29 Polestar 2 er hágæða rafbíll með afburða aksturseiginleika. Hann hefur komið gríðarsterkur inn á íslenskan rafbílamarkað. Brimborg og bílaframleiðandinn Polestar hafa komist að samkomulagi um verðlækkun á Polestar 2. Um takmarkað magn er að ræða. „
Brimborg hefur eftir stífar en góða samningviðræður við Polestar tekist að fá verðlækkun á Polestar 2 bíla sem við eigum á lager núna. Það munar verulega um þetta því þetta er um 5,5% lækkun eða 500.000 krónur. Að auki tókst að semja um betra verð á hinum öfluga Performance pakka sem lækkaði um 24% eða 200.000 krónur,“ segir Gísli Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs Polestar. Sterkur í íslenskum aðstæðum Polestar 2 er hágæða rafbíll með afburða aksturseiginleika. Hann hefur komið gríðarsterkur inn á íslenskan rafbílamarkað og reynst afar vel. Polestar 2 er fáanlegur einsdrifs og fjórhjóladrifinn og er einstakur akstursbíll hvort sem er sumar eða vetur. Staðalbúnaður er mjög ríkulegur og ekki síst þegar kemur að örygginu. Þægindabúnaður er einnig mikill og má þar nefna app í símann til þess m.a. að tryggja að bíllinn sé heitur á köldum morgnum. Hann er jafnframt með frábært stýrikerfi frá Android Auto. Performance útfærslan setur smá krydd í upplifunina með stillanlegu Öhlins fjöðruninni, Brembo bremsum, 20“ álfelgur og sínum 476.hestöflum sem skilar honum í 100km hraða á aðeins 4,4 sek. Núna eru mikil tímamót hjá Polestar þar sem vöruúrvalið stækkar úr einum bíl upp í þrjá á þessu ári. Það er vel þess virði að líta við í Polestar Reykjavík og sjá Polestar 2, Polestar 3 og Polestar 4 saman í salnum. Polestar 3 er nú í sýningarsal Polestar.Hulda Margrét Polestar 4 er umhverfisvænasti bíll Polestar til þessa og er mættur í sýningarsalinn.Hulda Margrét Stutt er síðan Polestar sendi frá sér fréttatilkynningu um að Polestar 4 væri umhverfisvænasti bíll þeirra til þessa, með lægra kolefnisspor en Polestar 2, þegar sá bíll kom fyrst á markað. Polestar birtir allar upplýsingar um kolefnisfótspor allra gerða sinna. Sænski rafbílaframleiðandinn telur að bílaiðnaðurinn ætti að vera drifkraftur í breytingunni til sjálfbærs hreyfanleika og að gagnsæi sé lykilatriði. Polestar er sænskur framleiðandi hágæða rafbíla sem er staðráðinn í að bæta samfélagið með aðstoð hönnunar og tækni til að flýta fyrir breytingum til sjálfbærra ferðamáta. Með höfuðstöðvar í Gautaborg, Svíþjóð, eru bílar þess fáanlegir á netinu á 27 mörkuðum um allan heim í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíulöndum við Kyrrahaf.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira