PSG sýnir Sancho óvænt áhuga Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. júlí 2024 18:30 Jadon Sancho og Erik Ten Hag á góðri stundu. Robbie Jay Barratt/Getty Images Jadon Sancho, vængmaður Manchester United, er óvænt á óskalista Frakklandsmeistara París Saint-Germain.
Sky Sports greinir frá en í frétt miðilsins segir að PSG hafi ekki enn lagt fram formlegt tilboð í þennan 24 gamla Englending. Sancho hefur átt erfitt uppdráttar hjá Man United og fór í fýlu eftir að Erik Ten Hag sagði að hann þyrfti að sýna á æfingum að hann ætti skilið að byrja leiki. Eftir að hafa verið frystur af Ten Hag var Sancho lánaður til Borussia Dortmund í Þýskalandi en Man Utd keypti hann þaðan árið 2021. Sancho skoraði 2 mörk í 14 deildarleikjum og Dortmund. Í frétt Sky Sports segir að Dortmund hafi áhuga á að festa kaup á leikmanninum en geti ekki borgað uppsett verð. Ítalska stórliðið Juventus ku einnig hafa áhuga en skortur á fjármagni hindrar félagið í að punga út 40 milljónum punda, rúmum sjö milljörðum króna, fyrir leikmann sem hefur skorað 12 mörk og gefið sex stoðsendingar í 82 leikjum fyrir Man United. Ten Hag og Sancho grófu stríðsöxina fyrir ekki svo löngu og hefur vængmaðurinn verið hluti af leikmannahópi félagsins á undirbúningstímabilinu. Hvort hann verði þar mikið lengur á svo eftir að koma í ljós.
Fótbolti Enski boltinn Franski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Fleiri fréttir Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Sjá meira