Nóel Atli lagði upp og fór meiddur af velli í endurkomu sigri Álaborgar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. ágúst 2024 19:15 Nóel Atli hefur byrjað tímabilið af krafti. Álaborg Álaborg sótti mikilvæg þrjú stig til Viborg í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Álaborgar og lagði upp annað mark liðsins. Þá lagði Hlynur Freyr Karlsson einnig upp mark í fjörugum leik í efstu deild Svíþjóðar.
Hinn 17 ára gamli Nóel Atli var að venju í byrjunarliði Álaborgar en þurfti að fara meiddur af velli á 59. mínútu leiksins. Þegar þar var komið við sögu hafði hann lagt upp annað mark gestanna sem lentu undir snemma leiks. Heimamenn komust yfir á 14. mínútu en gestirnir svöruðu með tveimur mörkum á fjögurra mínúta kafla. Það fyrra kom þegar tíu mínútur voru til loka fyrri hálfleiks og Nóel Atli lagði svo upp annað mark liðsins með fyrirgjöf frá vinstri að eins fjórum mínútum síðar. Heimamenn jöfnuðu þó metin fyrir lok fyrri hálfleik og staðan 2-2 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Á 56. mínútu skoruðu gestirnir það sem reyndist sigurmarkið en þremur mínútum síðar meiddist Nóel Atli og þurfti að fara af velli. Ekki er vitað hvað kom nákvæmlega kom fyrir en leikmaðurinn gat þó gengið af velli. Mörkin urðu ekki fleiri og lauk leiknum með 3-2 sigri gestanna og Álaborg komið með sex stig að loknum fjórum leikjum. Í efstu deild Svíþjóðar lagði Hlynur Freyr Karlsson upp þriðja mark Brommapojkarna í 3-3 jafntefli gegn Halmstad á útivelli. Hlynur Freyr lék allan leikinn á miðju gestanna. Hlynur Freyr og félagar eru með 25 stig eftir 18 leiki, sex stigum frá fallsvæðinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Fleiri fréttir Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Sjá meira