Pétur Jökull er Pj Glaze Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. ágúst 2024 13:25 Pétur Jökull Jónasson sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu svokallaða og hefur gefið út tónlist undir nafninu Pj Glaze. Vísir/Vilhelm Pétur Jökull Jónasson sem ákærður er fyrir aðild að innflutningi á tæplega hundrað kílóum af kókaíni og réttað hefur verið yfir síðustu daga í Héraðsdómi Reykjavíkur er líka tónlistarmaður. Hann hefur gefið út raftónlist undir listamannsnafninu Pj Glaze. Þá spilaði hann líka á hljómborð í rafhljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome.
Aðalmeðferð í málinu hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Um er að ræða ákæru á hendur Pétri fyrir innflutning á kókaíni hingað til lands frá Hollandi og Brasilíu sumarið 2022. Hann hefur alfarið neitað sök í málinu. Pétur hefur gefið út fimm lög undir listamannsnafninu sem öll má finna á streymisveitum líkt og Spotify og Yotube. Fyrsta lagið hét Transhuman og kom út árið 2014. Þremur árum síðar gaf Pétur út stuttskífuna Royal Pain með fjórum lögum. Samnefndu lagi Royal Pain, Daughter, Late at Night og Gray Days. Þá var Pétur áður hljómborðsleikari í íslensku rafhljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome sem gáfu út sína fyrstu plötu árið 2006. Sveitin sagði í samtali við Morgunblaðið við tilefnið að markmiðið væri að gera grín að Scooter og klúbbamenningu en Pétur gekk undir nafninu Gentleman í sveitinni. Sjá má á Youtube síðu Péturs að hann er mikill aðdáandi raftónlistar en þar hefur hann valið nokkur af sínum uppáhaldslögum og raðað á sérstakan lista. Þar má að mestu finna lög í svokölluðum house stíl en einnig lög eftir tónlistarmenn eins og Lönu Del Rey og Juicy J.
Tónlist Stóra kókaínmálið 2022 Mest lesið Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Lífið „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Lífið Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Lífið Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum Lífið „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Lífið BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Lífið samstarf Íslenski Eurovision-hópurinn lagður af stað Lífið Fleiri fréttir Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira