Lægð beinir norðlægum vindum yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2024 07:07 Gera má ráð fyrir hita sex til fjórtán stig að deginum, hlýjast sunnanlands. Vísir/Vilhelm Skammt suðaustur af landinu er nú hægfara lægð sem beinir norðlægum vindum yfir landið. Úrkomusvæði lægðarinnar mun þokast yfir austanvert landið og mun því rigna á þeim slóðum.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að það verði bjart með köflum og yfirleitt þurrt vestanlands. Áfram milt veður að deginum, einkum syðra. Gera má ráð fyrir hita sex til fjórtán stig að deginum, hlýjast sunnanlands. „Lægðin þokast austur á morgun og kemur ekki meira við sögu, en vindur verður vestlægari og birtir víða til. Önnur lægð nálgast annað kvöld af Grænlandshafi og fer að rigna á Vestfjörðum um kvöldið. Suðlæg átt og víða vætusamt dagana þar á eftir, en spáð er úrhellisrigningu á sunnanverðu landinu á laugardag. Áfram má reikna með gosmóðu víða á Reykjanesskaga og viðkvæmum því bent á að forðast áreynslu utandyra,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vestlæg átt, 3-10 m/s og bjart með köflum, en lítilsháttar væta við norður- og austurströndina. Þykknar upp vestanlands um kvöldið. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á föstudag: Vaxandi suðlæg átt, 8-15 m/s síðdegis, hvassast vestast. Væta norðvestantil, en annars skýjað að mestu, en fer að rigna sunnan- og vestantil um kvöldið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Ákveðin suðaustanátt og rigning, víða talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýtt í veðri. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir suðlæga eða breytilega átt með rigningu víða á landinu og heldur kólnandi veður. Á þriðjudag: Líklega suðvestlæg átt með skúrum og svölu veðri.
Veður Mest lesið Valtýr furðar sig á óhróðri, níði og aðdróttunum systkina Innlent Gögn sem fyrst voru ekki til brunnu síðar Innlent Kourani fluttur á Klepp Innlent Hundrað prósenta tollaaukning á allar vörur frá Kína Erlent Hvattir til að leggja tímanlega af stað Innlent Halla og Þorbjörg á leið til Kína Innlent Beygjuvasarnir stórhættulegir Innlent Magga Stína komin til Amsterdam Innlent Tapsárir unglingar lofuðu að lækka Innlent Nóbelsnefndin rannsakar mögulegan leka og óvenjuleg veðmál Erlent Fleiri fréttir Allt að átján stig fyrir austan á morgun Vindur fer smá saman minnkandi Fer að rigna og bætir í vind Smávægileg útköll vegna óveðursins Urðu fyrir sjóskvettu í beinni Spá mikilli ölduhæð við Faxaflóa í vestan hvassviðri Sjór geti gengið á land í Faxaflóa á morgun Gular viðvaranir vegna vestanstorms Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn Hægur vindur og skúrir eða slydduél Lægð á Grænlandshafi stjórni veðrinu þennan daginn Sleppum ekki alveg við leiðindi Gular viðvaranir og allt að 45 metrar á sekúndu í hviðum Hægviðri og víða bjart Skúrir og áfram milt í veðri Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Sjá meira