„Síðasta tímabilið mitt hjá Liverpool“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. september 2024 17:47 Mo Salah fagnar marki sínu fyrir Liverpool á Old Trafford í dag. Vísir/Getty Mohamed Salah sagði í viðtali eftir leik Liverpool og Manchester United að þetta yrði hans síðasta tímabil hjá Liverpool. Salah hefur leikið með félaginu frá árinu 2017.
Mohamed Salah skoraði þriðja mark Liverpool sem lagði Manchester United 3-0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Sigur Liverpool var sanngjarn og hefði getað orðið stærri. Eftir leik var Mohamed Salah í viðtali hjá Skysports en Salah hefur byrjað tímabilið vel og skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú í fyrstu þremur leikjum Liverpool. „Ég átti gott sumar og fékk langan tíma með sjálfum mér til að reyna að vera jákvæður því, eins og þið vitið, þá verður þetta mitt síðasta ár hjá félaginu,“ en samningur Salah rennur út eftir tímabilið. Hvorki hann né félagið hefur áður tjáð sig svo afgerandi um framtíð hans í Liverpool. „Mig langar bara að njóta þess og ekki hugsa of mikið um það. Mér líður eins og ég sé frjáls að spila fótbolta og svo sjáum við hvað gerist á næsta ári.“ Salah var orðaður við brottför frá Liverpool sumarið 2023 og var meðal annars orðaður við félög í Sádi Arabíu. Hann dró svo aðeins úr síðar í viðtalinu og sagði framtíðina ekki undir honum komið heldur félaginu. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá mætti ég í þennan leik með þá hugsun að þetta gæti verið í síðasta sinn sem ég spila á Old Trafford. Það hefur enginn hjá félaginu rætt við mig um samning. Þetta er ekki undir mér komið, heldur félaginu,“
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti England - Argentína | Messi mætir ensku ljónunum í fyrsta sinn Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira