Gular viðvaranir í hvassviðris Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2024 07:26 Hvassast verður undir Eyjafjöllum og í Selvogi með vindhviðum að 35 til 40 metrum. Vísir/RAX Það gengur í austlæga átt, átta til fimmtán metra en fimmtán til 23 metra á sekúndu sunnanlands í dag. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna vinds fyrir Suðurland og miðhálendið.
Á vef Veðurstofunnar segir að á Suðurlandi verði viðvörunin í gildi milli 12 og 18 þar sem hvassast verður undir Eyjafjöllum og í Selvogi með vindhviðum að 35 til 40 metrum á sekúndu. Á miðhálendinu er viðvörunin í gildi milli 13 og 22. Fram kemur að það fari að rigna um áttaleytið syðst á landinu og svo dreifist úrkomusvæðið til norðurs og rigning verði víða um landið síðdegis. Þurrt að kalla norðaustanlands fram undir kvöld. Hiti á landinu verður á milli átta og þrettán stig. Það dregur úr vindi í kvöld og styttir upp í nótt. „Á morgun verður suðvestan 5-13 m/s, skýjað og sums staðar dálítil væta, en norðlægari og úrkomumeira á norðvestanverðu landinu. Næsta lægð lætur á sér kræla eftir hádegi. Því þá snýst í austlæga átt 8-15 m/s og svo kemur næsta gusa seinnipartinn og á miðvikudag. Milt í veðri. Dregur úr vætu seint á miðvikudag og þá er útlit fyrir nokkra daga með hægum vindum, skýjað með köflum og lengst af þurrt. Hiti 5 til 10 stig að deginum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestlæg átt, víða 5-13 m/s og smá skúrir, en gengur í austan og suðaustan 10-15 með rigningu um kvöldið. Þurrt að kalla austanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast austantil. Á miðvikudag: Suðlæg átt 10-18, en norðlægari norðvestantil. Víða rigning en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti 10 til 18, hlýjast norðaustantil, en svalara á Vestfjörðum. Snýst í vestlæga átt 5-13 um kvöldið. Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8, skýjað og sums staðar lítilsháttar væta. Hiti 5 til 10 stig yfir daginn. Á föstudag: Fremur hæg suðaustlæg átt og bjart með köflum. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austlæg átt og skýjað, en yfirleitt bjart vestanlands. Hiti 3 til 8 stig. Á sunnudag (haustjafndægur): Útlit fyrir breytilega átt, skýjað og dálítil væta á víð og dreif. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira