„Aldrei séð Guardiola-lið svona lélegt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2024 10:30 Pep Guardiola klórar sér eflaust oft í kollinum þessa dagana. Stundum klórar hann sig meira að segja til blóðs. getty/Jonathan Moscrop Ekkert gengur hjá Englandsmeisturum Manchester City og Rio Ferdinand segist aldrei hafa séð jafn lélegt lið undir stjórn Peps Guardiola.
City tapaði fyrir Juventus í Meistaradeild Evrópu í gær, 2-0. Þetta var sjöunda tap liðsins í síðustu tíu leikjum. City hefur dregist langt aftur úr í kapphlaupinu um Englandsmeistaratitilinn og er í slæmum málum í Meistaradeildinni. Ferdinand, sem lék lengi með Manchester United, var sérfræðingur á TNT um leik Juventus og City í gær. Hann segist vera hissa á slæmu gengi City-manna. „Ég held að þetta komi okkur enn á óvart, miðað við það sem þeir hafa gert síðustu árin. Þeir hafa verið ógnarsterkur og unnið ensku úrvalsdeildina fjögur ár í röð,“ sagði Ferdinand. „En við höfum ekki séð Guardiola lið vera svona lélegt. Hann verður að finna leið til að snúa genginu við og fylla liðið sjálfstrausti. Það er mikil pressa á þeim.“ City hefur aðeins unnið einn af síðustu tíu leikjum sínum í öllum keppnum, gert tvö jafntefli og tapað sjö. Frá því í byrjun nóvember hefur ekkert lið í fimm stærstu deildum Evrópu fengið á sig fleiri mörk, eða tuttugu. Í síðustu þremur Meistaradeildarleikjum hefur City fengið á sig níu mörk. Næsti leikur City er gegn erkifjendunum í Manchester United á sunnudaginn. United er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en City í því fjórða.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Sjá meira