Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag Jón Þór Stefánsson skrifar 28. desember 2024 07:41 Búist er við breytilegri vindátt í dag. Vísir/Vilhelm „Í dag keppast smálægðir um að stýra veðrinu hjá okkur,“ segir í textaspá Veðurstofunnar um veðrið í dag.
Þar segir jafnframt að sú lægð sem hafi haldið að suðvestanáttinni með éljum á vestari helmingi landsins muni færast suður og svo austur fyrir. Þá muni önnur lægð á Húnaflóa fram eftir degi sem muni svo eyðast. Vegna þessa er búist við því að vindáttin verði breytileg. Það verði yfirleitt ekki hvass vindur og snjókoma með köflum. Þá muni eitthvað blása norðvestantil og allra syðst á landinu. Frost verður á bilinu tvö til átta stig. Fram kemur að undir kvöld verði vindurinn orðinn norðlægur og að víða verði átta til fimmtán metrar á sekúndu og él. En þá muni stytta upp sunnan heiða. Þá er búist við áframhaldandi norðlægri átt á sunnudag. Þó muni draga bæði úr vindi og ofankomu og herðir talsvert á frosti. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag:Norðan 8-15 m/s og dálítil él, en bjart að mestu sunnan heiða. Yfirleitt hægari eftir hádegi. Frost 4 til 16 stig, kaldast inn til landsins. Bætir í vind vestantil undir kvöld og sums staðar snjókoma.Á mánudag:Austlæg eða breytileg átt 5-13 og él á víð og dreif, en snjókoma sunnantil fram eftir morgni. Herðir á frosti, 5 til 20 stig síðdegis, kaldast í innsveitum fyrir norðan.Á þriðjudag (gamlársdagur) og miðvikudag (nýársdagur):Norðaustan og norðan 5-13 og dálítil él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Talsvert frost.Á fimmtudag:Snýst í vestlæga átt með dálitlum éljum, en þurrt á Suður- og Austurlandi. Áfram kalt í veðri.Á föstudag:Útlit fyrir kalda norðalæga átt með dálitlum éljum fyrir norðan og austan.
Veður Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Sjá meira