Fury segist vera hættur ... aftur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2025 16:30 Tyson Fury vann 34 af 37 bardögum sínum á atvinnumannaferlinum. Einn endaði með jafntefli og tveir töpuðust, báðir gegn Oleksandr Usyk. getty/Justin Setterfield Fyrrverandi heimsmeistarinn í þungavigt, Tyson Fury, segist vera búinn að leggja hanskana á hilluna.
Fury tapaði fyrir Oleksandr Usyk í desember. Það var annað tap hans fyrir Úkraínumanninum á síðasta ári en það voru einu töp hans á ferlinum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Fury, sem er 36 ára, lýsir því yfir að hann sé hættur en hann gerði það einnig eftir að hafa sigrað Dillian Whyte í apríl 2022. Hann sneri aftur hálfu ári seinna. Vegna þess taka margir nýjustu tilkynningu Furys með nokkrum fyrirvara. Meðal þeirra er Eddie Hearn, umboðsmaður Anthonys Joshua. Þeir Fury hafa aldrei mæst en möguleikinn á bardaga þeirra hefur lengi verið til staðar. En nú gæti hann verið úr sögunni. Frank Warren, umboðsmaður Furys, kvaðst ekki hafa rætt við Fury áður en hann tilkynnti að hann væri hættur. „Ég hef alltaf sagt að ég muni ekki reyna að hafa áhrif á hann,“ sagði Warren við BBC. „Ef þetta er það sem hann vill gera er það frábært. Hann hefur gert allt sem hann getur gert. Hann er líklega besti breski þungavigtarboxari sinnar kynslóðar. Tvöfaldur heimsmeistari, tveir spennandi bardagar gegn Usyk. Hann á nægan pening og indæla fjölskyldu. Guð blessi hann.“
Box Mest lesið „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ Körfubolti Markmaðurinn á batavegi eftir harkalegt höfuðhögg Fótbolti „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit Körfubolti Börsungar sneru við blaðinu gegn botnliðinu Fótbolti „Við gátum ekki farið mikið neðar“ Íslenski boltinn Fyrsta mark Eggerts í fimmta sigri Brann í röð Fótbolti Dagskráin í dag: Sextán beinar útsendingar Sport Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Körfubolti Vardy blés í flautu dómarans þegar hann féll við Enski boltinn Fleiri fréttir Markmaðurinn á batavegi eftir harkalegt höfuðhögg „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Börsungar sneru við blaðinu gegn botnliðinu „Við gátum ekki farið mikið neðar“ Fyrsta mark Eggerts í fimmta sigri Brann í röð Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Uppgjörið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjarnan fyrst til að skora gegn Val Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar FH-ingar kláruðu Akureyringa á korteri og jöfnuðu Blika á toppnum Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Leik lokið: Þróttur - Tindastóll 1-0 | Eina markið skorað úr fyrstu sókn leiksins Klúður hjá Everton gegn Ipswich og langþráður sigur Leicester Uppgjörið: Fram - FHL 2-0 | Fram nældi í sín fyrstu stig í nýliðaslagnum við FHL Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Meistararnir með markaveislu í sólinni Leipzig jafnaði á elleftu stundu og Bayern þarf enn að bíða Vardy blés í flautu dómarans þegar hann féll við Mikilvægur sigur Kristianstad og norsku meistararnir náðu í þrjú stig Sveindís fékk langþráð tækifæri í byrjunarliðinu Leeds vann B-deildina en Plymouth og Luton féllu Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni Fyrsti deildarsigur Brøndby á árinu Uppselt í fyrsta sinn á Álftanesinu Þriðja jafntefli Düsseldorf í röð en umspilið enn í augsýn Karólína lagði upp sigurmark Leverkusen Þórir ráðinn til HSÍ „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Sjá meira