Öryrki um þrítugt vegna verkja en lyfjalaus í dag Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 12. febrúar 2025 14:00 Vilhjálmur Andri, betur þekktur sem Andri Iceland, segir öndun og kulda hafa gjörbreytt lífi hans til hins betra. „Það var ekki fyrr en ég fór að vinna í þessu sjálfur að ég fann hvað skipti máli,“ segir Vilhjálmur Andri Einarsson, betur þekktur sem Andri Iceland. Andri, sem var orðinn öryrki rétt yfir þrítugt, ákvað að reyna að taka heilsu sína í eigin hendur eftir áratuga löng heilsufarsvandamál.
Andri var nýverið gestur Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms þar sem hann ræddi áhrif öndunar og kulda á líkamann. Með rannsóknum á öndunartækni og kuldaþjálfun segist Andri hafa fundið leið til að endurheimta orku og heilsu, lausn sem hann hefur nú kennt þúsundum manna. „Hættu að væla, komdu að kæla,“ segir hann og leggur áherslu á að kæling og rétt öndun geti umbreytt líðan og orku fólks. Lenti í slysi þrettán ára Áður en Andri fann lausnina í öndun og kulda hafði hann glímt við alvarlega heilsufarsvandamál í áratugi. Eftir að hafa dottið niður á milli hæða og lent illa á bakinu þegar hann var þrettán ára byrjaði hann að þjást af krónískum verkjum. Þeir dreifðust frá tá upp í höfuð og ollu einnig alvarlegum vandamálum í þvagblöðrunni. „Ég hélt að ég væri bara með eitthvað eðlilegt vandamál en þvagblaðran mín hafði stækkað upp í einn og hálfan lítra,“ segir hann. Eftir áratuga baráttu við verki, kvíða og þunglyndi, þar sem áfengi var oft notað sem tímabundin lausn, var Andri greindur með ADHD og fleiri kvilla. Engin lausn fannst sem virkaði til lengri tíma. Hann var loks greindur með skemmd í mænutagli og settur á sterk verkjalyf og önnur meðferðarúrræði og hann úrskurðaður sem sextíu og sjö prósent öryrki. „Ég var í þessu ástandi í fimmtán ár, á lyfjum og með ráðleggingar um að setja í mig lyfjadælubúnað til að róa taugakerfið,“ segir Andri. View this post on Instagram A post shared by ANDRI ICELAND || Health & Wellbeing Coach (@andri_iceland) Það var ekki fyrr en hann fann öndunartækni og kuldaþjálfun sem Andri segist hafa fundið raunverulegan bata. Með því að læra að stjórna öndun sinni og nota kulda til að endurstilla kerfið, tókst honum að hætta öllum lyfjum og snúa heilsunni við. „Ég er á engum lyfjum í dag og líður betur en nokkru sinni fyrr. Það var mín ákvörðun að velja annað erfitt. Það er erfitt að vera veill og á lyfjum en það er líka erfitt að velja lífsstíl sem krefst aga og breytinga. Ég valdi mitt erfitt.“ Segir öndun eitt öflugasta en vanmetnasta verkfærið Andri telur öndunina eitt af öflugustu verkfærum sem við eigum til að bæta líkamlega og andlega heilsu en flest okkar nýti hana ekki rétt. Áhrif hennar séu vanmetin og fólk trúi því ekki fyrr en á reynir hve öflugt verkfæri hún sé. „Ef við skoðum frumstæðari samfélög, þar sem fólk andar rétt og lifir náttúrlegu lífi, þá sjáum við ekki sama fjölda sjúkdóma og í vestrænu samfélagi,“ segir Andri og bendir á að öndunin okkar hafi breyst með þróun samfélagsins og breyttum venjum okkar. „Í dag anda 65% fullorðinna meira með munninum en nefinu og 50% barna anda meira í gegnum munninn en nefið,“ segir hann og bendir á að þetta hafi ekki alltaf verið svona. Tyggjum minna og kjálkinn hafi minnkað Hann bendir á að allt að 500 ára gamlar hauskúpur sem hafi verið rannsakaðar sýni að áður fyrr höfðu menn stærri kjálka, stærra nefop og beinar tennur. „Vísindamenn tengja þetta við breyttar fæðuvenjur: Við tyggjum minna, börn eru skemur á brjósti og við notum ekki kjálkavöðvana eins mikið. Þetta hefur valdið því að kjálkinn hefur minnkað, minna pláss er fyrir tennurnar og tunguna og öndunarvegurinn þrengist. Þegar minna pláss er í munni og koki er líklegra að fólk andi í gegnum munninn fremur en nefið, sem er stórt vandamál“ segir Andri. Segir neföndun lífsnauðsynlega fyrir góða heilsu Andri segir að öndun í gegnum nefið sé ekki bara eðlilegari, heldur lífsnauðsynleg fyrir góða heilsu. „Þegar við öndum í gegnum nefið tökum við upp súrefni á skilvirkari hátt, við setjum jafnvægi á þrýsting í líkamanum og framleiðum köfnunarefnisoxíð (nitric oxide), sem eykur blóðflæði og hjálpar til við súrefnisupptöku í frumum okkar,“ útskýrir Andri og bætir við að auk þess þjálfi neföndun þindarvöðvann, sem sé lykillinn að djúpri og áhrifaríkri öndun. ,,Nefið er einnig fyrsta vörnin okkar gegn sjúkdómum en með því að anda í gegnum það hreinsum við loftið, hitum það og styrkjum ónæmiskerfið. Ættum að sættast við kuldann Auk réttrar öndunar er kuldinn ein af þeim aðferðum sem Andri telur geta umbreytt heilsu fólks. Hann segir að við forðumst kulda en kannski ættum við að sættast við hann. „Kuldi virkar ekki bara vel á líkamann, heldur einnig á hugann. Við erum of dekruð og skýlum okkur alltaf fyrir köldum aðstæðum. En þegar við venjumst kuldanum virkjast ferlar í líkamanum sem auka blóðflæði, draga úr streitu og styrkja ónæmiskerfið,“ segir Andri. View this post on Instagram A post shared by ANDRI ICELAND || Health & Wellbeing Coach (@andri_iceland) Hann ráðleggur öllum að byrja einfalt – til dæmis með því að enda sturtuna á 30 sekúndna kaldri bunu. „Eftir nokkrar vikur finnurðu mun á einbeitingu, svefni og almennri vellíðan.“ Samspil öndunar og hugarróar er líka lykilatriði að mati Andra. „Við getum andað okkur inn í kvíða, en við getum líka andað okkur inn í jafnvægi,“ segir hann og bætir við að langflestir dragi andann of hratt, sem getur aukið streitu. „Ef þú andar meira en sex sinnum á mínútu gætirðu haft gott af því að hægja á og stjórna önduninni meðvitað,“ segir Andri. Síminn geti minnt mann á að anda hægar Andri bendir á að einfalt ráð til að minnka streitu sé að setja áminningu í símann til að minna reglulega á að beina athyglinni að önduninni og hægja á henni. Hann leggur áherslu á að allir geti æft og betrumbætt öndunina. „Þetta er ekki flókið, þetta snýst um æfingu og endurtekningu. Ef þú vilt breyta önduninni, settu áminningu í símann, minntu þig á að hægja á önduninni og æfðu meðvitaða öndun. Þá mun heilsan fylgja eftir,“ segir Andir og minnir á að hann sé með námskeið þar sem fólk getir lært meira um þessar aðferðir, þjálfað þær og endurheimt orku sína og bætt líðan. Ekkert gerist ef þú gerir ekki neitt Andri leggur mikla áherslu á að taka ábyrgð á eigin heilsu og vellíðan. Hann lýsir því hvernig hann var lengi að bíða eftir að einhver annar myndi lækna hann eða leysa hans vandamál, en áttaði sig svo á því að enginn gæti gert það fyrir hann. Hann þyrfti sjálfur að taka stjórnina. „Það var ekki fyrr en ég fór að vinna í þessu sjálfur að ég fann hvað skipti máli,“ segir hann. Þrátt fyrir alvarlega mænutaugaskemmd og viðvarandi verkjavandamál tókst Andra að finna leið til að bæta líðan sína. Hann segir að lykillinn hafi verið að hætta að mótmæla aðstæðum sínum, sætta sig við þær og finna leiðir til að vinna í kringum þær – með réttri öndun, kuldameðferð, réttu hugarfari og stöðugri sjálfsvinnu. „Lausnirnar eru oft nær en við höldum,“ segir Andir og bætir við að það felist mikið frelsi í því að axla ábyrgð á eigin líðan. „Ekki gerist neitt ef þú gerir ekki neitt. En ef þú gerir eitthvað í því, þá gerist fullt.“ Hér má hlusta á allt hlaðvarpið.
Heilsa Mest lesið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Hilmir Snær stígur einn á svið Menning Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir Lífið Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Lífið samstarf Fleiri fréttir „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Sjá meira