Él sunnan- og vestanlands og hvessir í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 27. febrúar 2025 07:10 Hiti verður í kringum frostmark í dag. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir suðvestanátt á landinu í dag þar sem víða verður stinningsgola en sums staðar strekkingur. Gera má ráð fyrir éljum sunnan- og vestanlands, en að verði úrkomulítið norðaustantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði í kringum frostmark. Það mun víða stytta upp seinnipartinn. „Víðáttumikil lægð við Nýfundnaland er á leið norðaustur og dýpkar, og í kvöld nálgast hún landið. Þá gengur í vaxandi suðaustanátt með rigningu á Suður- og Vesturlandi og hlýnar. Sunnan hvassviðri eða stormur framan af morgundeginum, vætusamt og hlýtt veður. Síðdegis dregur úr vindi og kólnar með éljum um landið sunnan- og vestanvert,“ segir á vef Veðurstofunnar. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Breiðavirði, Vestfjörðum, Miðhálendi og Ströndum og Norðurlandi vestra sem taka gildi seint í kvöld og eru í gildi fram á miðjan dag á föstudag. Áfram er svo útlit fyrir umhleypingasamt veður um helgina. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan 15-23 m/s og rigning, hvassast vestantil, en úrkomuminna norðaustanlands. Hiti 2 til 9 stig. Suðvestan 10-18 síðdegis og kólnar með éljum um landið sunnan- og vestanvert. Á laugardag: Suðvestan 13-20 og él, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig. Dregur úr vindi síðdegis, en gengur í suðaustan 10-18 með rigningu sunnan- og vestanlands um kvöldið og hlýnar. Á sunnudag: Snýst í suðvestan 15-20 með éljum, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Kólnar í veðri. Á mánudag: Vestan- og suðvestanátt og allvíða él. Hiti víða í kringum frostmark. Suðlægari um kvöldið og rigning eða slydda suðvestantil. Á þriðjudag: Vaxandi suðlæg átt og víða rigning eða slydda. Hlýnar í veðri, hiti víða 2 til 8 stig um kvöldið. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og kólnar með éljum.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira