Dregur úr vindi þegar líður á daginn Atli Ísleifsson skrifar 31. mars 2025 06:54 Hiti á landinu verður á bilinu tvö til sjö stig yfir hádaginn. Vísir/Vilhelm Dagurinn byrjar með suðvestanátt þar sem víðast hvar má reikna með 15 til 23 metrum á sekúndu. Spáð er skúrum eða éljum, en léttskýjuðu á Austurlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hiti á bilinu tvö til sjö stig yfir hádaginn. „Dregur hægt úr vindi og skúrum síðdegis, en snýst í suðlæga átt með rigningu eða slyddu undir kvöld, fyrst sunnanlands. Morgundagurinn verður mjög svipaður og dagurinn í dag. Suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða él, en bjart að mestu austantil. Hiti breytist lítið. Dregur úr vindi og skúrum síðdegis, en fer að rigna aftur sunnan- og austanlands um kvöldið. Á miðvikudag verður breytileg átt 5-13 m/s, en snýst í vestlæga átt 8-15 síðdegis og norðvestan 13-20 austantil. Skúrir eða él vestanlands, en rigning eða snjókoma eystra fram undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig. Útlit fyrir rólegt og úrkomulítið veður á fimmtudag og dagana þar á eftir,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða él. Hægari og bjart með köflum eystra, en dálítil slydda eða snjókoma þar um kvöldið. Hiti 2 til 10 stig, svalast á Vestfjörðum. Á miðvikudag: Vestan og suðvestan 8-15 og stöku skúrir eða él. Slydda eða snjókoma austantil, en léttir til seinnipartinn. Hiti 0 til 5 stig, en dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið og kólnar. Á fimmtudag: Breytileg átt 3-8 og yfirleitt bjartviðri, en skýjað og sums staðar lítilsháttar væta á norðvestanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig. Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt og léttskýjað í flestum landshlutum, hiti 2 til 7 stig. Á laugardag og sunnudag: Suðlæg átt og bjart með köflum, en skýjað og sums staðar lítilsháttar væta á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti 4 til 10 stig.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira