Ráðalaus ráðherra Högni Elfar Gylfason skrifar 28. maí 2025 06:31 Það hefur verið forvitnilegt en jafnframt fróðlegt að fylgjast með átökunum undanfarið á Alþingi íslendinga. Einkum þó og sér í lagi því hvernig ráðherra dómsmála hefur tekið á eða kannski fremur ekki tekið á málum sem heyra undir ráðuneyti hans. Hlýðir ráðherra undirmanni sínum? Eitt það fyrsta sem lenti í fangi ráðherrans þegar hann tók við lyklavöldum dómsmálaráðuneytisins var að leysa úr ágreiningi um störf vararíkissaksóknara. Reyndar héldu flestir að ágreiningurinn væri úr sögunni þar sem fyrri ráðherra málaflokksins hafði þá þegar úrskurðað í málinu og hafnað beiðni ríkissaksóknara um vararíkissaksóknari yrði leystur frá störfum, sá hafði enda ekki brotið af sér í starfi á nokkurn hátt. Sú undarlega aðgerð ríkissaksóknara að hundsa úrskurð fyrri ráðherra og meina vararíkissaksóknara að koma til starfa er rannsóknarefni og hlýtur að hafa verið helsta skoðunarefni nýs ráðherra. Það að engin niðurstaða sé enn komin frá ráðherranum í málinu og ef rétt reynist að hann hafi boðið vararíkissaksóknara flutning í annað starf verður ekki annað sé en að dómsmálaráðherra sé með því að láta undan kröfum síns fyrrverandi yfirmanns og núverandi undirmanns, ríkissaksóknara. Öðruvísi mér áður brá. Ekki verður hjá því komist að velta upp spurningum um hæfi ráðherrans til að úrskurða í málinu hafandi áður verið undirmaður málsaðila. Vafasamur brottrekstur lögreglustjóra Þá að öðru máli ekki ómerkilegra því fyrra. Nú á dögunum tók dómsmálaráðherra sig til að bolaði lögreglustjóranum á suðurnesjum úr starfi. Segja má að þar hafi verið á ferðinni brottrekstur með skömm þrátt fyrir að umtalað hefur verið hversu öflugur hinn brottrekni lögreglustjóri hafði verið, bæði gagnvart atburðum kringum eldgos í og við Grindavík og ekki síður við gæslu landamæra Íslands á Keflavíkurflugvelli. Þá hafði umræddur lögreglustjóri verið duglegur við að upplýsa landsmenn um brotalamir á landamærunum ásamt því að senda ítrekað minnisblöð í ráðuneytið þar sem væntanlega hefur verið bent á vankanta og leiðir til úrbóta. Að hans sögn voru þessar meldingar hans hundsaður í ráðuneytinu og greip hann til myndlíkingar til útskýringar og líkti ráðuneytinu við svarthol. Allar tilraunir dómsmálaráðherra til að gera lítið úr brottrekstrinum og öllu kringum hann hljóta að verða vegnar og léttvægar fundnar, enda skýra orð lögreglustjórans í viðtali i Spursmálum málavexti býsna vel og fletta í raun ofan af makki ráðherra. Gagnaleki og hæfi ráðherra Þriðja vandræðamál dómsmálaráðherra er svo gagnalekamálið, en það snýst um að gögn um ýmsa einstaklinga sem embætti héraðssaksóknara (áður sérstaks saksóknara) hafði í sínum fórum hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Hvort um var að ræða gagnaþjófnað eða hvort umræddur saksóknari afhenti viðkomandi gögnin er ekki komið í ljós, en það virðist allavega ljóst er að ráðherra málaflokksins hefur ekki lyft litlafingri til að reyna að leysa málið. Hér eins og í öðrum málum vakna spurningar um hæfi ráðherra þar sem hann er nátengdur ýmsum málsaðilum hafandi verið í starfi hjá ríkissaksóknara sem tengdur er málinu. Bæta má svo við að þingmaður í flokki ráðherra er flæktur í málið hafandi verið rannsakandi hjá embætti sérstaks saksóknara á þeim tíma sem gögnum var safnað um einstaklinga, en því hefur verið haldið fram að í einhverjum tilfellum sé um að ræða ólöglega hleranir. Lengi m á böl b æta með því að benda á annað verra Eftir öll þessi vandræðamál mætti ætla að títtnefndur dómsmálaráðherra væri búinn að missa kjarkinn og jafnvel taugarnar. Svo virðist þó ekki vera og lítur út fyrir að forherðing sé framar í forgangsröðinni. Þannig tók ráðherrann til við rústabjörgun eftir öll vandræðamálin sem liggja óleyst hjá garði. Útspilið var gera tilraun til að beina vondri athygli að Miðflokknum með upplognum sökum um að þingmenn hans beri ábyrgð á að litlu þingmálin hennar um landamæri og útlendinga hafi ekki komist til afgreiðslu í þinginu. Ítrekaðar yfirlýsingar ráðherrans í viðtölum og á þingi með þessar upplognu yfirlýsingar að vopni voru jafnharðan leiðréttar af þingmönnum Miðflokksins, en það virtist ekki trufla ráðherrann. Því voru góð ráð dýr og í því skyni að fletta endanlega ofan af ósannindum dómsmálaráðherra setti þingflokksformaður Miðflokksins fram dagskrárbreytingatillögu með stuðningi hinna stjórnarandstöðuflokkanna þar sem litlu landamæra- og útlendingamál ráðherra yrðu færð fremst á dagskrá þingsins, en ríkisstjórnin hafði fram að því stillt þeim málum mjög aftarlega á þingmálalistann sem var einmitt ástæða þess að ekki var komið að þeim. Þegar svo var komið að stjórnarandstaðan var búin að króa ráðherra og ríkisstjórn af berrössuð á berangri neyddust þau til að samþykkja breytta dagskrá og um leið að láta eins og það hafi verið öðrum en þeim sjálfum að kenna að þessi mál höfðu ekki komist til umræðu í þinginu. Niðurstaðan er því sú að hæstvirtur dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, var felld með hælkrók af samstilltri stjórnarandstöðu. Það væri óskandi að hún léti sér það að kenningu verða og tæki upp siðsamlegri samskiptamáta við félaga sína á Alþingi íslendinga, hvort heldur í stjórn eða stjórnarandstöðu. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Miðflokkurinn Högni Elfar Gylfason Mest lesið Íslenskir Trumpistar Andri Þorvarðarson Skoðun „Ég ætlaði aldrei að hætta í útgerð“ Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Hvað var RÚV að hvítþvo – og til hvers? Hilmar Kristinsson Skoðun Þegar Evrópa fer á hnén og kallar það vináttu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson Skoðun Hvers virði er ég ? Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skoðun Hærri vörugjöld, lægri samkeppnishæfni Arnar Þór Hafsteinsson Skoðun Að vera húsbyggjandi Hilmar Freyr Gunnarsson Skoðun 4.865 börn sem bíða í allt að fjögur ár Ragnheiður Dagný Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir Trumpistar Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun „Sofðu rótt í alla nótt“ – Um stöðu íslenskunnar, lestrarmenningu og ákall til okkar sjálfra Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Í hvað á orkan að fara? Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Vegatálmar á skólagöngunni Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar Evrópa fer á hnén og kallar það vináttu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað var RÚV að hvítþvo – og til hvers? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnvöld mega ekki klúðra nýju vaxtaviðmiði Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Að vera húsbyggjandi Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Hærri vörugjöld, lægri samkeppnishæfni Arnar Þór Hafsteinsson skrifar Skoðun Að einfalda veruleikann og breyta öllu í pólitískt fóður Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Tími til kominn Berglind Friðriksdóttir,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson,Vilhjálmur Baldur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvers virði er ég ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun RÚV brýtur á börnum Guðbjörg Hildur Kolbeins skrifar Skoðun Framtíðarsýn Íslands: Raunsæ tækni, græn orka og friður fyrir hugann Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Ég ætlaði aldrei að hætta í útgerð“ Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon skrifar Skoðun 4.865 börn sem bíða í allt að fjögur ár Ragnheiður Dagný Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf að tilnefna fulltrúa í European SET Plan Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir skrifar Skoðun Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Velkomin á fjórðu vaktina Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er framtíðin? Um olíuleit við Ísland Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Vísvitandi verið að skaða atvinnulífið? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Varaflugvallagjaldið og flugöryggi Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Á rauðu ljósi í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú tíma? Ósk Kristinsdóttir skrifar Skoðun Heilnæm fæða – íslenskur landbúnaður er grunnur öryggis okkar Ragnar Rögnvaldsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Sofðu rótt í alla nótt“ – Um stöðu íslenskunnar, lestrarmenningu og ákall til okkar sjálfra Gunnar Már Gunnarsson skrifar
Skoðun Tími til kominn Berglind Friðriksdóttir,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson,Vilhjálmur Baldur Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðarsýn Íslands: Raunsæ tækni, græn orka og friður fyrir hugann Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon skrifar
Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir skrifar
Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson skrifar