Dómarinn fékk gult spjald og glotti Sindri Sverrisson skrifar 1. júní 2025 23:16 Rohit Saggi sló óvart leikmann Kristiansund sem lá eftir. Leikmaðurinn fékk svo að sýna Saggi gula spjaldið. Skjáskot/tv2.no Það líður varla sá fótboltaleikur að dómarar þurfi ekki að lyfta gula spjaldinu en í Noregi í dag var það dómarinn sjálfur sem fékk áminningu, eftir að hafa veitt leikmanni högg.
Hinn virti dómari Rohit Saggi sá um dómgæsluna í 4-2 sigri Íslendingaliðsins Brann á Kristiansund, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta, og var ansi mikið í sviðsljósinu. Hann húðskammaði til að mynda Rezan Corlu, danskan leikmann Kristiansund, sem hafði verið að hreyta ónotum í andstæðing sem lá í grasinu eftir brot. Saggi fékk svo sjálfur gult spjald í seinni hálfleiknum, eftir að hafa óvart veitt Niklas Ødegård í liði Kristiansund högg þannig að hann féll til jarðar. Atvikið má sjá hér. Ødegård þurfti tíma til að jafna sig en þegar hann var kominn á fætur rétti Saggi honum gula spjaldið svo að Ødegård gæti lyft því, og „spjaldað“ dómarann. Báðir virtust geta hlegið að atvikinu þó að Ødegård væri sjálfsagt ekki skemmt yfir stöðunni í leiknum sem Brann vann eins og fyrr segir 4-2. Eggert Aron Guðmundsson lagði upp eitt marka Brann, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar. Liðið komst með sigrinum upp í 2. sæti deildarinnar nú þegar þriggja vikna sumarfrí tekur við. Viking er með sex stiga forskot á toppnum, eftir 1-0 útisigur gegn Molde í kvöld, en Brann á leik til góða.
Norski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Sjá meira