Ástandið á Urriðavelli ekki gott og Íslandsmótið fært á Hlíðavöll Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. júní 2025 08:37 Anna Júlía Ólafsdóttir vann mótið á Hlíðavelli í fyrra og hefur nú færi á að verja titilinn á sama stað. golfsamband íslands Íslandsmótið í holukeppni kvenna fer fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ 20. - 23. júní. Til stóð að mótið færi fram viku fyrr, á Urriðavelli í Garðabæ 13.-15. júní, en eftir mat á vallaraðstæðum var ákveðið að færa mótið.
Golfsamband Íslands segir sameiginlega ákvörðun mótsstjórnar og Golfklúbbsins Odds „að ástand flata á Urriðavelli væri því miður ekki nægilega gott svo að upplifun keppenda yrði sú sem allir vilja.“ Mótinu hefur því verið frestað um eina viku og fært á Hlíðavöll í Mosfellsbæ. Kvennamótið mun þá fara fram samhliða karlaflokki. Kvennaflokkur mun leika 36 holu höggleik á föstudegi, frí á laugardegi, sextán manna úrslit og átta manna úrslit á sunnudegi og undanúrslit og úrslit á mánudegi. Anna Júlía Ólafsdóttir úr GKG er ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í holukeppni, hún vann mótið í fyrsta sinn í fyrra. Nánar um mótið, skráningu keppenda og þátttökuskilmála má finna á heimasíðu Golfsambandsins.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira