Bjart og milt peysuveður Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júní 2025 09:34 Fólk á gang í Laugardal. Vísir/Vilhelm Bjart verður með köflum sunnan- og vestantil en búast má við lítilsháttar rigningu norðaustan- og austanlands. Lægð við Nýfundnaland heldur til norðausturs í átt að landinu og mun valda austlægari átt á morgun.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Veðurstofan segir útlit fyrir fremur hæga norðlæga átt. Búast megi áfram við lítilsháttar rigningu eða slyddu norðaustan- og austanlands, en þar dregur úr úrkomu þegar líður á daginn. Bjart með köflum sunnan- og vestantil, en skúrir á víð og dreif. Hiti verður á bilinu fjögur til tólf stig, svalast á Norðausturlandi en mildast á Suðurlandi. „Á miðvikudag gengur í austan strekking eða allhvassan vind syðst á landinu, annars hægari. Þá þykknar upp sunnan heiða og dálítil rigning með köflum síðdegis, en lengst af bjart fyrir norðan. Hlýnar heldur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og dálitlar skúrir sunnan- og austanlands, en bjartviðri á Norðvesturlandi. Hiti fimm til fjórtán stig, hlýjast vestantil. Á miðvikudag: Austan 10-15 m/s syðst á landinu, annars hægari vindur. Lengst af bjart fyrir norðan, en skýjað og fer að rigna sunnan heiða seinnipartinn. Hlýnar heldur. Á fimmtudag: Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 og dálítil væta með köflum, en léttir víða til síðdegis. Hiti sjö til sautján stig, mildast syðst. Á föstudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en þokuloft við suðaustur- og austurströndina. Áfram milt. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt og víða bjart, en skýjað með köflum suðaustantil og lítilsháttar væta. Hiti sjö til sautján stig, hlýjast vestanlands.
Veður Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Flugvöllur er ekki bara upp á punt Innlent Grunaður um líkamsárás og rán Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir austanátt á kjördag Engin ávísun á sól og blíðu Víða strekkingsvindur og allnokkur úrkoma norðantil Suðvestanátt og væta í flestum landshlutum Skýjað með köflum en styttir svo upp Spáir mildu áfram en útlit fyrir rigningu Víða þurrt en skúrir eða él vestast á landinu Svalri norðlægri átt beint til landsins Áfram él norðan- og austantil en bjart annars staðar Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Bjart suðvestantil en él norðan- og austanlands Útlit fyrir kalda norðanátt fram eftir viku Áframhaldandi norðanátt og stöku él Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Sjá meira