Upp­gjörið: Víkingur - KR 3-2 | Víkingur tyllti sér á toppinn í frá­bærum leik

Árni Jóhannsson skrifar
Karl Friðleifur Gunnarsson var örlagavaldur í leiknum í kvöld.
Karl Friðleifur Gunnarsson var örlagavaldur í leiknum í kvöld. Vísir / Diego

Víkingur lagði KR í frábærum fótboltaleik í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar karla. Leikurinn endaði 3-2 en eins og við var að búast var mikið um tilþrif, hraði, vafaatriði og mörk sem einkenndu leikinn.

Leikur Víkings og KR var frábær í einu orði sagt.Vísir / Diego

Bæði lið byrjuðu af fítonskrafti í dag og það var ekki langt liðið af leiknum þegar færi, hornspyrnur og margt annað hafði gerst. Bæði liðin áttu sínar sóknarlotur og voru í áhlaupum í leik sem líktist körfuboltaleik á löngum köflum í dag. 

Valdimar Þór var einn af mörgum sem slapp oft og tíðum í gegnum vörn KR í kvöld.Vísir / Diego

Fyrsta markið var líka ekki lengi á leiðinni. Bæði lið fundu svæði sem hægt var að sækja í hjá hvort öðru. Valdimar Þór Ingimundarson slapp einn í gegn á 11. mínútu og var felldur af Halldóri Snæ markverði og vítaspyrna dæmd. Helgi Guðjónsson steig á punktinn og negldi boltanum í netið.

Aftur voru liðin komin í gang og létu höggin dynja á hvort öðru en 20 mínútum eftir fyrsta markið náðu KR að jafan metin. Þá var dæmd vítaspyrna á Víking.

Gabríel Hrannar fékk boltann í vítateignum eftir sendingu frá Atla Sigurjónss. sem Karl Friðleifur varði með hendi en slapp með skrekkinn og fékk bara gult spjald en rauði liturinn hefði átt að líta dagsins ljós.

Karl Friðleifur fagnar marki sínu vel.Vísir / Diego

Jóhannes Kristinn Bjarnason sendi Ingvar í rangt horn og boltann í netið. Allt jafnt. 11 mínútum síðar skoraði Karl Friðleifur Gunnarsson mark og kom heimamönnum yfir. Þá slapp hann í gegn og kláraði færið vel en eins og oft í leiknum tapaði KR boltanum á mjög slæmum stað.

Jóhannes Kristinn Bjarnason fagnaði sínu marki en hann átti afskaplega öruggt víti.Vísir / Diego

90 sekúndum síðar, á 45. mínútu, jöfnuðu gestirnir metin en þá stakk Jóhannes Kristinn Gylfa Þór af og renndi boltanum á Matthias Præst sem renndi boltanum undir Ingvar í markinu.

Matthias Præst skorar fyrir KR.Vísir / Diego

Og þá var hægt að flauta fyrri hálfleikinn af og hvíla sig eftir frábæran hálfleik sem lauk í stöðunni 2-2. 

Víkingur kom út í seinni hálfleikinn með ákafann skrúfaðan í botn. Oliver Ekroth skallaði í slána á 48. mínútu og á 49. mínútu var Gunnar Vatnhamar búinn að skora mark eftir sendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni.

Gunnar Vatnhamar fagnar markinu sínu vel og innilega.Vísir / Diego

Víkingur þétti þá raðirnar og náði í mýmörg skipti að komast góð svæði en úrslitasendingar þeirra voru ekki góðar og ekki náðu þeir að bæta við marki. KR-ingar voru líka góðir og náðu í nokkur skipti að opna svæði í vítateig heimamanna en uppskáru ekki mark.

Víkingur náði þess vegna að sigla leiknum í höfn og koma sér aftur á topp Bestu deildar karla eftir 11 umferðir.

Atvik leiksins

Það er vítaspyrnan sem er dæmd á Karl Friðleif. Hann hefði með réttu átt að vera rekinn út af en slapp með gult og að sjálfsögðu skoraði hann mark sem skipti máli í þessum leik. Mögulega hefði annar maður hjá Víking komist í þessa stöðu en Víkingur hefði kannski ekki stigið jafn mikið á framfótinn manni færri.

Stjörnur og skúrkar

Í raun og veru engir skúrkar, frammistöðulega séð, en Karl Friðleifur skúrkur að því leiti að hafa nýtt hendi til að verja boltann. Að öðru leyti gerði Karl vel á þessum 45 mínútum sem hann spilaði. Mikið var um tilþrif í leiknum en Gylfi Þór var góður varnarlega, Eiður Gauti var frábær sem uppspilspunktur fyrir KR og margir fleiri sem gerðu virkilega vel. Jóhannes Kristinn Bjarnason var þá með mark og stoðsendingu.

Gylfi Þór með eina af sínum frægu spyrnum.Vísir / Diego

Það er kannski hægt að taka varnarlínu KR fyrir en það er líka orðin gömul tugga og eitthvað sem maður býst við.

Umgjörð og stemmning

Vel mætt í Víkina í kvöld og báðar fylkingar létu vel í sér heyra. Umgjörðin er náttúrlega til fyrirmyndar.

Þétt setinn bekkurinn í kvöld.Vísir / Diego

Dómarinn

Jóhann Ingi Jónsson gerði stór mistök með því að reka ekki Karl Friðleif út af í fyrri hálfleik. Karl skoraði síðan og var að því leyti örlagavaldur í leiknum. Margar ákvarðanir voru mögulega ekki sem bestar hjá teyminu í dag þegar búið er að skoða nokkur atvik betur.

Jóhann Ingi og félagar stóðu í ströngu í kvöld.Vísir / Diego

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira