Tómas steinlá gegn þeim þýska Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2025 12:15 Tómas Hjaltested mundar kylfuna á Opna breska áhugamannamótinu í golfi. Getty/Alex Burstow Tómas Eiríksson Hjaltested varð að sætta sig við tap í 32 manna úrslitum á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í dag.
Tómas var sá eini af þeim sex íslenskum kylfingum sem hófu leik sem náði að komast í gegnum tveggja hringja höggleikinn og inn í 64 manna útsláttarkeppni mótsins, þar sem keppt er í holukeppni. Hann sló út Frakkann Paul Beauvy með afar sannfærandi hætti í gær, þar sem leik lauk þegar Tómas komst fimm holum yfir og aðeins þrjár holur eftir. Tómas mætti svo Þjóðverjanum Tim Wiedemeyer í dag en þar var við ramman reip að draga og varð Tómas á endanum að sætta sig við nokkuð stórt tap því leiknum lauk þegar þeir höfðu leikið þrettán holur því þá var Þjóðverjinn kominn með sex holu forskot. Það verður því Wiedemeyer sem heldur áfram að spila í dag, í 16 manna úrslitunum. Sýn Sport 3 sýnir beint frá lokadögum mótsins, á morgun og laugardag, þegar keppt verður í 8 manna úrslitum, undanúrslitum og úrslitum.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira